Drekavellir 37 eru afar glæsilegt og vandað einbýlishús á frábærum stað, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Eignin er skráð 231,5 fm samkvæmt fasteignaskrá, þar af er íbúðarhúsnæði 197,0 fm og bílskúr 34,5 fm.Nánari upplýsingar um skipulag eignarinnar má sjá á meðfylgjandi teikningu.Húsinu hefur verið vel við haldið, efnisval er vandað, innréttingar eru fyrsta flokks með hágæða tækjum. Terrazzo gólf og bæsað viðarparket á íbúðarrýmum undirstrika glæsilegt yfirbragð eignarinnar. Hér er um að ræða eign í sérflokki, þar sem ekkert hefur verið til sparað.Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með miklu skápaplássi. Frá forstofu er innangengt í þvottahús með góðri innréttingu og þaðan áfram inn í bílskúr eignarinnar.
Við tekur einstaklega bjart og opið alrými með gólfsíðum gluggum, sem veita fallegt ljósflæði inn í rýmið. Í alrýminu tengjast eldhús, borðstofa og stofa á einstaklega fallegan og náttúrulegan hátt. Rýmið er stórt og bjart og myndar hjarta heimilisins.
Í eldhúsinu eru sérsmíðaðar spónlagðar innréttingar, sem voru endurnýjaðar árið 2014. Borðplötur eru úr steinsteypu og og vinnupláss er mjög gott. Frá eldhúsi er útgengt á glæsilegan sólpall eignarinnar.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, þar af tvö góð barnaherbergi sem eru 13,6 fm og 11,4 fm að stærð. Hjónaherbergið er rúmgott með stóru og vel skipulögðu fataherbergi, með sérsmíðuðum spónlögðum innréttingum. Möguleiki er á að útbúa fjórða svefnherbergið með því að nýta hluta fataherbergisins.
Baðherbergið er einstaklega fallegt og vel hannað, með stórri „walk-in“ sturtu með tveimur sturtuhausum, baðkari og fallegri sérsmíðaðri spónlagðri innréttingu. Á veggjum eru flísar, terrazzo á gólfum og innfelld blöndunartæki, sem gefa rýminu fágað yfirbragð. Gengið er inn á baðherbergið frá gangi, en jafnframt er innangengt frá fataherbergi.
Þvottahúsið er með hvítlakkaðri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu.
Bílskúrinn er rúmgóður og býður upp á mikla möguleika í geymslulausnum. Hann er snyrtilegur með epoxy á gólfum.
Lóðin er afar vel staðsett og snýr vel gagnvart sólu. Við húsið er stór og glæsilegur sólpallur, sem býður upp á góða útiaðstöðu. Lóðin er snyrtilega frágengin með steyptum veggjum, sem skapa bæði skjól og aukið næði. Bílastæði er framan við húsið með góðu plássi fyrir allt að þrjá bíla.
Hér er um að ræða einstaka fjölskyldueign, þar sem hönnun, efnisval og frágangur mynda heild sem erfitt er að finna.Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is