Fasteignamiðstöðin kynnir eignina Sævarendi 3, 755 Stöðvarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 217-8433 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Til sölu er 300 fm eign á tveimur hæðum við Sævarenda 3 á Stöðvarfirði, byggt árið 1966. Húsið stendur á 800 fm lóð í sjávarþorpinu Stöðvarfirði.
Eignin er í bágu ástandi og þarfnast mikilla endurbóta og viðhalds. Húsið hefur orðið fyrir umtalsverðum vatnsskemmdum og er búið að loka fyrir vatnsinntak að utan. Eignin selst í því ástandi sem hún er og er kaupendum bent á að kynna sér ástand hennar vandlega. Húsið er steinsteipt og telur seljandi ástand steypunnar gott. Húsið er skráð samtals 300 fm, en þar af er neðri hæðin um 260 fm. Telur seljandi góða möguleika á að útbúa þar verkstæði td. eða vinnuaðstöðu/geymslu. Þriggja fasa rafmagn er á húsinu sem stendur á 800 fm leigulóð.
Þetta er áhugavert verkefni fyrir handlagna aðila eða þá sem leita að stóru húsnæði á Austfjörðum með möguleika á að blanda saman búsetu og atvinnustarfsemi eða verkstæði.
Staðsettning á korti
https://landeignaskra.hms.is/?v_mode=landeign&v_land=158912&v_lsk=1-1&v_sf=10063294Eignin Sævarendi 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 217-8433, birt stærð 307.2 fm.
Tilvísunarnúmer: 09-1346
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, Hlíðarsmára 17 201 Kópavogi - sími: 550 3000
tölvupóstfang: fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 - tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is
Guðrún Olsen síma 550 3000 - tölvupóstfang gudrun@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 - tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,
til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.