Miklaborg kynnir: Glæsilegt einbýlishús á frábærum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið hefur verið mikið endurnýjað og er með aukaíbúð í kjallara. Stór hellulagður suðurgarður.
Húsið er til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Ísl. er húsið 345,9 m2, flatarmál íbúðarrýmis er 313,9 m2 og flatarmál bílskúrs 32 m2. Húsið sem er hæð, ris og kjallari skiptist í 4 svefnherbergi, eitt fataherbergi, 3 baðherbergi, 3 stofur, borðstofu og 2 eldhús ásamt þvottaherbergi.
Nánari lýsing:
Aðalhæð 106,5 m2.
Komið er inn í flísalagt anddyri sem er með fatahengi. Glæsileg gestasnyrting er til hliðar. Úr anddyri er gengið inn í rúmgott hol og þar á móti eru stórar og bjartar stofur með fallegum gluggum. Svalir eru út af innri stofu. Eldhús er með sérsmíðaðri eikar innréttingu og er með eldunareyju og stóru helluborði. Steinn er á borðum. Borðstofa er opin við eldhús og stofur. Vandað parket er á gólfum. Úr eldhúsi er útgengt á pall sem snýr í norður og þar er grillaðstaða. Af pallinum eru tröppur niður á hellulagða verönd.
Efri hæð (ris) 101,9 m2.
Glæsilegur viðarstigi parketlagður upp á efri hæð. Tvö svefnherbergi eru á hæðinni og eru þau bæði parketlögð. Hjónaherbergið er með sér fataherbergi og sér baðherbergi með sturtu og baðkari, vegghengt salerni, hiti í gólfi, flísar á gólfi. Sér þvottaaðstaða á efri hæð þar sem áður var svefnherbergi.
Kjallarinn 105,5 m2.
Í kjallara eru tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús með hvítri fallegri innréttingu, rúmgóð stofa, baðherbergið, flísalagt með sturtu og þvottaaðstöðu. Hægt er ganga út í garðinn úr stofu. Gólfefni parket og flísar. Gólfhiti. Sérinngangur er í kjallarann og þar getur því verið aukaíbúð.
Bílskúr 32 m2.
Hiti í innkeyrslu og bílastæði fyrir framan bílskúr. Bílskúr er með vatni og rafmagni. 16 m2 garðhús er á baklóð. Húsið hefur fengið gott viðhald og Þakefni er kopar. Rennur, dren, rafmagn, allir gluggar, gólfefni, innréttingar og lagnir endurnýjaðar 2008. Fallegur gróðursæll garður er fyrir framan húsið. Hleðstöð er á lóð og hiti í tröppum aðalinngangs.
Eignin er til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
107 | 345,9 | Tilboð | ||
101 | 152 | 134,9 | ||
604 | 318,8 | Tilboð | ||
270 | 319,6 | 169,9 | ||
101 | 104,3 | 125 | ||
101 | 153 | 174,9 |