Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna: Afar vandað og gott 10-12 hesta hesthús (parhús) á svæði hestamannafélagsins Sörla Hafnarfirði. Húsið er samtals 123,4 fm þar af rúmgóð 30 fm efri hæð (kaffistofa/eldhús ofl) V-svalir. Stutt er í glæsilega nýja reiðhöll og félagsaðstöðu Sörla. Frábærar reiðleiðir. Tvímælalaust hesthús í sérflokki. Laust strax.Húsið er vandað af allri gerð, steypt, einangrað að utan og klætt með lituðu bárujárni og er því viðhaldslétt. Nokkrar eins hestastíur og 2ja hesta stíur líka. Plast og ryðfrítt efni í milligerðum. Hlaða er góð með innk.dyrum. Hnakka og reyðtygjaaðstaða. Tveir inngangar eru inn í húsið.
Góður fóðurgangur, rúmgott sérgerði og góð lóð við endann á húsinu. Kaffistofa á efri hæðinni er rúmgóð (steypt milliloft) vönduð innrétting og parket á gólfum. Rúmgott flísalagt baðherbergi með sturtuaðstöðu, upphengt salerni. Veluxgluggar opnanlegir eru á efri hæðinni, þ.e. kaffistofu og baðherbergi. Vestur svalir frá kaffistofu. (grill svalir) Frábær staðsetning í hverfinu.
Innfelld lýsing í hesthúsi og á efri hæð.Hiti í gólfum, ofnar á efri hæðinni. Hiti í stéttum úti.
Vélmokað hús.
Gestagerði sameiginlegt fylgir. (í sameign með húsinu við hliðina.)Áhugaverð eign til að skoða frekar !Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.