Fasteignaleitin
Skráð 10. apríl 2025

Prestshús Kjalarnesi

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Kjalarnes-162
85,000 m2
Verð
350.000.000 kr.
Fermetraverð
4.118 kr./m2
Fasteignamat
2.420.000 kr.
Mynd af Magnús Leópoldsson
Magnús Leópoldsson
Fasteignanúmer
2085417
Landnúmer
125743
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Fasteignamiðstöðin er með til sölu jörðina Prestshús hjáleigu frá Hofi, 162 Kjalarnesi. Fastanúmer 208-5417, landnúmer 125743.

Í jarðarbókin frá 1704 telst Prestshús. Jörðin kemst seinna meir í eigu Brautarholts og er talin í fasteignamati þess árið 1930. Búskap lauk í Prestshúsum 1946. Bæjarhús stóðu skammt frá sjávarbakka vestan við Hofsvík eða þann hluta hennar, sem er nefnd Presthúsavík. Bæjarsker heitir sker í víkinni og fellur vel yfir það. Vel nýtur útsýnis til fjalla frá Prestshúsum. Í bókinni Kjalnesingar ábúendur og saga Kjalarneshrepps segir um Prestshús að þar mun hafa verið byggt ból um langt skeið en án fastrar búsetu síðustu áratugina. Landið var nýtt undir sumarbústað og var tún í ræktun og nýtt. Prestshúsahólmar er hryggur á þaragarði, sem gengur út í Hofsvík. Þar er einkennilegur klettur í hólmanum, sem stendur eins og á fæti. Hann heitir Arnarklettur. Utan við bæ er hæð og síðar hólar, er draga nafn af býlinu. Norðan í Presthúsahæðinni er klettur í útliti eins og fiskasleggja og heitir Sleggja. Hér bjó huldufólk enda kjörnir bústaðir þess samkvæmt þjóðtrúnni. Lengra með sjó fram eru Prestshúsabjörg og -tangar. Merki býlisins að norðan móti Bakkakoti eru um Heiðvíkurlæk. Um nokkra grasnyt var að ræða og sjávargagn meðan hér var búið. Áður voru þrír sumarbústaðir í landareigninni og eru rústir af þeim þar. Akvegur liggur að Prestshúsum um Hjassa.

Skv. núgildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir: "uppbygging á svæðinu verður á afmörkuðu svæði suðvestan undir klettaholtum með útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og Reykjanes. Afmarkarður verða byggingareitir fyrir íbúðarhús ásamt gestahúsi, gróðurhúsi, skemmu og bátaskýli þar sem gert er ráð fyrir að heimilia uppgyggingu samtals allt að 1000m2."
Sjá nánar https://www.skipulagsvefsja.is


Mjög áhugaverð eign í fögru umhverfi. m.a. óviðjafnanleg strandlengja þar sem Reykjavík blasir við. Slíkt land er almennt ekki í boði svo nærri borginni. Jörðin Prestshús Kjalarnesi sem nú tilheyrir Reykjavík er mjög áhugaverður fjárfestingarkostur.

Staðsettning á korti https://landeignaskra.hms.is/?landeign=125743
Tilvísunarnúmer: 10-2687

Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, Hlíðarsmára 17 201 Kópavogi - sími: 550 3000
tölvupóstfang:  fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is  / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 - tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is
Guðrún Olsen síma 550 3000 - tölvupóstfang gudrun@fasteignamidstodin.is            
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 - tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,
til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
85,000 m2
Fasteignanúmer
2085417
Húsmat
1.500.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
1.500.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (97)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hvítárbyggð lóð
Hvítárbyggð lóð
801 Selfoss
11,397.5 m2
Jörð/Lóð
1 þ.kr./m2
15.900.000 kr.
Skoða eignina Skeiðakur 3
Skoða eignina Skeiðakur 3
Skeiðakur 3
210 Garðabær
Jörð/Lóð
100.000.000 kr.
Skoða eignina Mánabakki 2
Skoða eignina Mánabakki 2
Mánabakki 2
805 Selfoss
8,020 m2
Jörð/Lóð
3 þ.kr./m2
24.000.000 kr.
Skoða eignina Skógarhlíð 1
Skoða eignina Skógarhlíð 1
Skógarhlíð 1
806 Selfoss
6,370 m2
Jörð/Lóð
1 þ.kr./m2
7.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin