Fasteignaleitin
Opið hús:14. okt. kl 17:00-18:00
Skráð 9. okt. 2026

Hjarðarhagi 64

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
126 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
102.900.000 kr.
Fermetraverð
816.667 kr./m2
Brunabótamat
64.280.000 kr.
Byggt 1955
3. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20280571
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Sérlega falleg og mikið endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð auk bílskúrs, þrjú rúmgóð herbergi, mjög hlýleg og björt stofa, opið fallegt eldhús og svalir frá gangi. Samtals stærð samkvæmt fasteignamari er 126 fermetrar, sem skiptist í 101,5 fermetra íbúð merkt 03-0301 og 24,5 fermetra bílskúr merktur 04-0111, innréttaður sem skrifstofa og líkamsrækt. Geymslur í kjallara eru utan fermetratölu íbúðar. Falleg íbúð, afar smekklega endurnýjuð. Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is

Aðkoma hússins er mjög aðlaðandi, en útidyr voru pússaðar og lakkaðar í sumar. Anddyri og stigagangur hússins er mjög vel um gengið, en stigagangur var teppalagður og málaður árið 2022, þar sem haldið hefur verið í upprunalegt útlit eftir föngum. Nýlegar eldvarnarhurðar eru fyrir öllum íbúðum. Gengið er inn gang íbúðarinnar þar sem er nýr hvítlakkaður fataskápur. Opið eldhús er til vinstri, stofa til hægri en hurð og karmur hafa verið fjarlægð úr stofudyrum, og gluggi er í svaladyrum við enda gangsins. Rýmið er þess vegna mjög bjart og hlýlegt.
Eldhúsið er sérlega fallegt, nýlega endurnýjað með hvítlökkuðum innréttingum og með sérsmiðuðum límtrésborðplötum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, auk þess sem hvítur veggháfur er yfir helluborði. Stofan er gengt eldhúsinu, björt og vistleg með stórum glugga til suðurs sem hleypir góðri birtu inn. Sem fyrr segir er ekki hurð í stofudyrunum, sem eykur birtuflæði og gefur betri tilfinningu fyrir rými.
Baðherbergið er mjög smekklegt, með flísum á gólfi og tveimur veggjum. Þar er snyrtileg innrétting, baðkar með sturtu, handklæðaofn og aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru þrjú og nýtast vel. Hjónaherbergið er rúmgott með stórum fataskápum á heilum vegg, en auk þess eru tvö mjög vistleg barnaherbergi.
Úr gangi er gengið út á svalir sem snúa til austur, en þær henta ágætlega fyrir grill.
Gólfefni íbúðarinnar er vínylparket frá Birgisson, sem var lagt árið 2022. Hurðir eru hvítlakkaðar og íbúðin er nýlega máluð. Það hefur verið skipt um alla glugga í íbúðinni, en það var gert í áföngum á árunum 2022-2026.
Bílskúrinn er staðsettur við enda frístandandi bílskúralengju og hefur verið innréttaður sem skrifstofa og líkamsrækt, með heitu og köldu vatni.
Í kjallara eru þrjár geymslur sem tilheyra íbúðinni, ein ca. 1 fm, önnur ca. 1,3 fm og svo ca. 3,5 fm. Í sameign er jafnframt þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla.

Húsið virðist hafa fengið gott viðhald á undanförnum árum og hefur verið staðið að ýmsum endurbótum:
  • Skolplagnir voru endurnýjaðar á árunum 2011-2012.
  • Rafmagnstöflur voru endurnýjaðar á árunum 2018-2019 og nýjar raflagnir dregnar í allar íbúðir. Jafnframt voru settar hleðslustöðvar fyrir ragmangsbíla. Lagt var fyrir tveim tvöföldum hleðslustöðvum og ein sett upp. Stöðin er þjónustuð af Ísorku.
  • Skipt var um þakjárn sumarið 2020 og einangrun yfir plötu í húsnúmerum 62 og 64 endurnýjuð.
  • Stigagangur var teppalagður og málaður árið 2022.
  • Útidýr hússins voru pússaðar og lakkaðar sumarið 2026.
  • Gluggum í íbúðinni hefur verið skipt út í áföngum á árunum 2022-2026.

Hér er um að ræða vel hannaða, bjarta og fallega íbúð sem nýtist mjög vel ásamt bílskúr sem bíður upp á fjölbreytta möguleika. Frábær staðsetning í Vesturbænum, þar sem stutt í er í leikskóla, skóla, fjölbreytt tómstunda- og íþróttastarf, verslanir og útivist.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraungata 7
Bílastæði
Skoða eignina Hraungata 7
Hraungata 7
210 Garðabær
116,8 m2
Fjölbýlishús
312
992 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (203)
Bílastæði
Hraungata 7 (203)
210 Garðabær
116,4 m2
Fjölbýlishús
32
996 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7
Bílastæði
Skoða eignina Hraungata 7
Hraungata 7
210 Garðabær
116,6 m2
Fjölbýlishús
32
1054 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7c (604)
Opið hús:13. okt. kl 17:00-17:30
Friðjón_vefur.jpg
Eirhöfði 7c (604)
110 Reykjavík
119,4 m2
Fjölbýlishús
413
942 þ.kr./m2
112.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin