Fasteignaleitin
Skráð 9. sept. 2026

Flétturimi 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
98.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.500.000 kr.
Fermetraverð
825.735 kr./m2
Fasteignamat
72.450.000 kr.
Brunabótamat
62.700.000 kr.
Mynd af Marta Jónsdóttir
Marta Jónsdóttir
Lögfræðingur
www.sunnafast.isEignalisti
Byggt 1990
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2040156
Landnúmer
109526
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Ekki vitað um vandamál
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Ekki vitað um vandamál
Gluggar / Gler
Ekki vitað um vandamál
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Snyrtilegar og stórar
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna Flétturima 7, íbúð 203.
 *LÆKKAÐ VERÐ*
Um er að ræða virkilega glæsilega og algjörlega endurnýjaða tæplega 100 fm íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi. Íbúðin skiptist í stóra forstofu, 2 góð svefnherbergi, baðherbergi, fataherbergi/skot, rúmgott opið eldhús, borðstofu og stofu, þvottahús/búr, og geymslu í sameign. Útgengt er á rúmgóðar hornsvalir frá stofu. Næg bílastæði eru framan við húsið. 
 
Á árunum 2023-2024 var eignin tekin í gegn og skipulagi íbúðarinnar breytt:
* 
Útbúin var forstofa með skápum og console borði sem fylgir eigninni.
* Útbúið var fataherbergi í skoti á ganginum með sérsmíðuðum skápum.
* Í eldhúsi var milliveggur tekinn niður og eyja sett í staðinn. Eyjan var sérsmíðuð og flísalögð.
* Hurð á baðherbergi var færð til að koma fyrir skáp inn á baði.
* Baðkar tekið og útbúin walk-in sturta með glerhlið.
* Þvottahús var stækkað og innbyggð rennihurð sett í stað venjulegrar hurðar.
* Dregið var í nýtt rafmagn og nýjum innstungum bætt við. Ný ljós sett í alla íbúðina. Skipt um alla slökkvara.
* Hiti var settur í gólf.
* Flísalagt með vönduðum flísum frá Ebson sem eru 120x120.
* Allar hurðar endurnýjaðar og sagað úr loftum til að þær næðu alveg upp að loftum. Hurðarnar eru frá Mood Interiors.
* Nýjir fataskápar settir í hjónaherbergi og sérsmíðuð hilla sem fylgir eigninni.
* Blöndunartæki bæði í eldhúsi og inn á baði voru endurnýjuð. Á baðinu eru vönduð blöndunartæki frá Vola úr Tengi.
* Klósett og vaskur endurnýjað. Hvoru tveggja frá Ísleifi Jónassyni.
* Öll íbúðin var máluð ásamt því sem loft var sléttað (var áður hraunað).

Flestir aukahlutir innan íbúðar, s.s. höldur og hurðahúnar,  koma frá Járn og gler og eru mjög vandaðir. Allar innréttingar eru sérsmíði frá Birninum. Led ljós eru í tækjaskáp í eldhúsi og í skápum í forstofu, á gangi og í hjónaherberginu.

Tækin í eldhúsinu, þ.e. ísskápur, eldavél, og helluborð eru vönduð og eru frá Bosch. Frystiskápur í þvottahúsi er frá Electrolux. Öll tæki eru innbyggð og fylgja.
Flísar sem notaðar eru á eyju, inn á baði og á fleiri stöðum til að tengja rýmin saman koma frá Álfaborg. 
Gardínur voru sérsaumaðar fyrir alla íbúðina. Þær eru tvöfaldar í svefnherbergjum og geta fylgt. Sama með öll ljós, þau geta fylgt.
 
Framkvæmdir utanhúss: 
Húsið hefur almennt fengið gott viðhald í gegnum árin. Árið 2021 var þak eignarinnar endurnýjað í heild sinni. Tvær hleðslustöðvar voru settar upp á bílaplani árið 2023. 
Þá var skipt um teppi á stigagangi árið 2024.
Hússjóður er kr. 26.847.
 
Þetta er einstök eign þar sem hvergi hefur verið til sparað í endurbótum. Öll vinna var framkvæmd af fagmönnum og allt efnisval valið af kostgæfni. Sami viður og flísar flæða um eignina og mynda heild sem tengja saman öll rými. Útkoman er afar hlýleg og virkilega falleg eign. 
 
Flétturimi er á góðum stað innan Grafarvogs með alla þjónustu við hendina. Stutt er í Spöngina, gönguleiðir og útivistarsvæði. 
Þetta er eign sem þú vit ekki missa af! 

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/05/201625.100.000 kr.28.000.000 kr.98.7 m2283.687 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sólmundarhöfði 7
50 ára og eldri
Hleðslustöð
Sólmundarhöfði 7
300 Akranes
108,5 m2
Fjölbýlishús
312
697 þ.kr./m2
75.600.000 kr.
Skoða eignina Tröllakór 5-7
IMG_3355.jpeg
Skoða eignina Tröllakór 5-7
Tröllakór 5-7
203 Kópavogur
101,4 m2
Fjölbýlishús
312
739 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7
Bílastæði
Opið hús:20. okt. kl 16:00-16:30
Skoða eignina Hraungata 7
Hraungata 7
210 Garðabær
116,6 m2
Fjölbýlishús
32
1054 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Grænaborg 10 (102)
Opið hús:26. okt. kl 17:30-18:00
Grænaborg 10 (102)
190 Vogar
92,2 m2
Fjölbýlishús
413
705 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin