Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2025

Sólmundarhöfði 7

FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
108.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.600.000 kr.
Fermetraverð
696.774 kr./m2
Fasteignamat
66.450.000 kr.
Brunabótamat
61.800.000 kr.
Mynd af Björn Þorri Viktorsson
Björn Þorri Viktorsson
hrl. og lögg. fasteignasali
www.midborg.isEignalisti
Byggt 2015
Jarðhæð af 8
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
50 ára og eldri
Fasteignanúmer
2305719
Landnúmer
205319
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Góðar yfirbyggðar s-a svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Viðgerð á þaki hjólageymslu er lokið og greiddi seljandi allan kostnað v. þess.
Kvöð / kvaðir
Eignin er fyrir 50 ára og eldri.
Fasteignasalan Miðborg kynnir mjög fallega og bjarta 3ja herbergja 108 fm. íbúð á 2. hæð að Sólmundarhöfða 7 á Akranesi, sem er 9. hæða lyftuhús með tveimur útsýnislyftum, ætlað fyrir 50 ára og eldri.  Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu/herbergi innan íbúðar.  Glæsilegar s-a svalir með svalalokun og fallegu útsýni.  Íbúðin er skráð 01-01, þar sem jarðhæðin er skráð sem 00-01.  Einstök staðsetning á sjávarlóð við náttúruperluna Langasand.

Nánari lýsing:  Komið er á rúmgóða parketlagða forstofu með 5x fataskápum og innbyggðum spegli með baklýsingu.  Eldhúsið er parketlagt, með fallegri eikarinnréttingu (þverliggjandi) með granít á vinnuborðum, span helluborði og AEG ofni.  Veggur á milli stofu og eldhúss hefur verið fjarlægður sem opnar rýmið mjög.  Rúmgott hjónaherbergi með 4x fataskápum til lofts.  Baðherbergið er flísalagt, með innréttingu, glugga, handklæðaofni og sturtu.  Þvottahúsið er flísalagt, með góðum innréttingum og gert ráð fyrir vélum í vinnuhæð, gluggi og skolvaskur í þvottahúsi.  Parketlögð geymsla innan íbúðar, með glugga og hillum og aðstöðu fyrir frystiskáp/kistu (hægt að nýta sem herbergi).  Stofan er parketlögð, rúmgóð og björt, með útgangi á stórar yfirbyggðar suð-austur svalir með fallegu útsýni.  Glerlokun niður undir svalagólfi, parketflísar á gólfi, panelklæðning á veggjum, lýsing og hitalampi á svölum.  Innaf stofunni er parketlagt svefnherbergi, með stórum hornglugga og fallegu útsýni.  Björt eign, með gluggum í öllum aðalrýmum.

Sameign hússins er einstaklega snyrtileg og mikill metnaður íbúa blasir þar við.  Forstofa við aðalinngang á 1. hæð er flísalögð og þar er myndavéla-dyrasími og aðgangsstýring að sameign. Sameignargangar við lyftur eru teppalagðir og mjög rúmgóðir og bjartir.  Sameiginleg hjólageymsla á 1. hæð.  Úr snyrtilegri sorpgeymslu er hægt að taka út sameiginlegt háþrýstitæki til bílaþvotta.
Húsið er 8 hæðir, steypt og klætt með álklæðningu og tekið í notkun 2015/2016.  31 íbúð eru í húsinu og við það eru 27 bílastæði á lóð og þar af 2 stæði með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.  Einstök staðsetning við sjóinn, náttúruna og Langasand, Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili, íþróttasvæðið, sundlaugina, og gönguleiðir.  Stutt í nýja miðbæinn og alla þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/01/201723.900.000 kr.30.300.000 kr.108.5 m2279.262 kr.Nei
04/04/201337.350.000 kr.80.000.000 kr.3076.5 m226.003 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Baughamar 25
Bílastæði
Opið hús:06. sept. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Baughamar 25
Baughamar 25
221 Hafnarfjörður
114 m2
Fjölbýlishús
413
675 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 23
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:06. sept. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Baughamar 23
Baughamar 23
221 Hafnarfjörður
98.6 m2
Fjölbýlishús
413
810 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 23
Bílastæði
Opið hús:06. sept. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Baughamar 23
Baughamar 23
221 Hafnarfjörður
109.6 m2
Fjölbýlishús
322
866 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 23
Bílastæði
Opið hús:06. sept. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Baughamar 23
Baughamar 23
221 Hafnarfjörður
99.9 m2
Fjölbýlishús
413
840 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin