NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS MILLI KL.9 OG 18 ALLA VIRKA DAGA Í SÍMA 771-5211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3VÍDD
RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallega og vel skipulagða 76,7fm, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í snyrtitlegu fjölbýlishúsi með 2 lyftum við Álalind 14 í Kópavogi. Eignin er staðsett í vinsælu hverfi í Lindunum og státar af rúmgóðum og björtum vistarverum ásamt góðum 11,2fm vestursvölum.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 76,7fm, þar af sérgeymsla í kjallara 8,6fm.
Helstu kostir:- Vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð.
- Stórar 11,2fm vestursvalir með góðum geymsluskáp.
- Björt og rúmgóð stofa með gluggum í tvær áttir.
- Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskápum.
- Baðherbergi með góðri þvottaaðstöðu.
- Sérgeymsla í kjallara, 8,6fm að stærð.
- Nýlegt fjölbýlishús, byggt árið 2017.
- Góð staðsetning í Lindahverfinu í Kópavogi.
Nánair lýsing:
Forstofa: Komið er inn í snyrtilega forstofu með góðum fataskáp og parketi á gólfi. Aðkoma um sameign hússins er mjög snyrtileg.
Eldhús: Er opið inn í bjart og rúmgott alrými með snyrtilegri svartri L-laga innréttingu og hvítum efri skápum, span helluborði með viftu fyrir ofan ásamt innbyggðri uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Er rúmgóð og björt með gluggum til norðurs og vesturs. Parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á góðar 11,2 fm vestursvalir.
Svalir: Eru 11,2fm og snúa í vestur. Á svölunum er rúmgóður geymsluskápur sem nýtist vel fyrir grill og eða útihúsgögn.
Svefnherbergi: Er rúmgott með góðum fataskápum, fataslá og gluggum til vesturs. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Er snyrtilegt með innréttingu, handlaug, veggfestu salerni, glersturtuklefa ásamt handklæðaofni. Góð þvottaaðstaða er á baðherberginu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Flísar á gólfi og á hluta veggja.
Sérgeymsla: Er 8,6 fm og staðsett í kjallara hússins.
Húsið og sameign: Álalind 14 er 40 íbúða fjölbýlishús á 10 hæðum, byggt árið 2017. Hiti er sameiginlegur og greiddur samkvæmt hlutfallstölu. Rafmagn er á sérmæli fyrir íbúðina en rafmagn í sameign skiptist jafnt á alla eignarhluta, 2,5% á hvern eignarhluta.
Staðsetning: Eignin er staðsett í Lindahverfinu í Kópavogi, í grónu og vinsælu íbúðahverfi. Stutt er í fjölbreytta verslun og þjónustu, skóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu. Góðar samgöngutengingar eru við önnur hverfi höfuðborgarsvæðisins.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila (0,4% við fyrstu kaup einstaklinga).
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. – samkvæmt gildandi gjaldskrá sýslumanns.
Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
Umsýsluþóknun til fasteignasölu – 69.900 kr. m.vsk.