Fasteignaleitin
Skráð 25. feb. 2026

Hásteinsvegur 6

EinbýlishúsSuðurland/Vestmannaeyjar-900
174.2 m2
Verð
Tilboð
Brunabótamat
69.350.000 kr.
Byggt 1910
Sérinng.
Fasteignanúmer
21835701
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Hásteinsveg 6 sem er einbýlishús á þremur hæðum í Vestmannaeyjum sem þarfnast verulegs viðhalds.  Húsið er byggt úr timbri árið 1907 og er eignin skráð 174,2 m2 þar af er bílskúr 40 m2 byggður árið 1987. Húsið er nánast fokhelt,  er á góðum stað nálægt miðbæ Vestmannaeyja. Möguleiki á að útbúa séríbúð á neðri hæð með sérinngangi. Stærð lóðar er 298,8 m² og býður sömuleiðis upp á mikla möguleika. 


BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105

Lýsing eignar:  
Eignin er 174,2 m2 að stærð og þarfnast mikilla endurbóta. Eignin er nánast fokheld en þó eru gluggar í lagi.  Eignin er á þrem hæðum, timburgólf á 2. og 3. hæð en í  kjallara er steypt gólf. Í kjallara er  opið rými, útgengt í garð.  Miðhæð og efri hæðar eru einnig opið rými. Þörf er á að endurnýja þak að öllu leyti fyrir utan grind. Þörf er á að einangra veggi að utan og innan og klæða. Húsið er byggt úr timbri en þó eru endagaflar steyptir.
Bílskúr er steyptur, 40 m2 byggður árið 1987 og er í betra ásigkomulagi.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eyjaeignir
www.eyjareignir.is

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sunnubraut 15
Bílskúr
Skoða eignina Sunnubraut 15
Sunnubraut 15
250 Garður
157.6 m2
Einbýlishús
4
507 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Grundargata 54
Skoða eignina Grundargata 54
Grundargata 54
350 Grundarfjörður
185.1 m2
Einbýlishús
614
351 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Staðarbakki 4
Skoða eignina Staðarbakki 4
Staðarbakki 4
109 Reykjavík
162.5 m2
Raðhús
514
708 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 35
Skoða eignina Hringbraut 35
Hringbraut 35
220 Hafnarfjörður
172.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
715
636 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin