Fasteignaleitin
Opið hús:04. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 30. okt. 2026

Ásvallagata 69

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
91.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
74.500.000 kr.
Fermetraverð
813.319 kr./m2
Fasteignamat
71.450.000 kr.
Brunabótamat
39.300.000 kr.
Mynd af Daði Runólfsson
Daði Runólfsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1938
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2002445
Landnúmer
100772
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað/sagt í lagi
Raflagnir
Endurnýjað/Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Sagt í lagi
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd/Pallur
Lóð
20,93
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Ekki liggja fyrir samþykktar framkvæmdir á vegum húsfélags. Rætt hefur verið um að klæða húsið með bárujárni til fegrunar. 
Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna:  Ásvallagata 69, 101 Reykjavík.

TVÆR ÍBÚÐIR - LEIGUTEKJUR. Mikið endurnýjuð 91,6 fm, 3ja herbergja íbúð/ir á jarðhæð með sérinngangi í fjórbýli við Ásvallagötu 69. Nýlega er búið að útbúa stúdíóíbúð með sérinngangi í hluta eignarinnar. Auðvelt er að sameina aftur í eina heild. Möguleiki á góðum leigutekjum. Frábærlega staðsett eign á eftirsóttum og rólegum stað í gamla Vesturbænum. 

Nánari lýsing eignar:

Gengið er meðfram húsinu í suðurgarð þar sem er sérinngangur í íbúðina. Á vesturhlið er sérinngangur í studíóíbúð.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fatahengi. Þar fyrir aftan er geymsla. 
Eldhús og borðstofa/stofa eru í opnu rými, nýleg hvít innrétting, stór nýlegur gluggi sem snýr að garði, flotað gólf.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með flotuðu gólfi og gluggum í suður og austur.
Miðrými: Innan við eldhús, fyrir framan baðherbergi, er rými sem er gluggalaust en býður upp á margvíslega nýtingarmöguleika. Gott skápapláss.
Baðherbergi: Rúmgott með flotuðu gólfi, opin sturta og baðkar, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegur gluggi. 
Stúdióíbúð: Nýlega var útbúin studíóíbúð með sérinngangi á vesturhlið hússins. Rúmgott baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og snyrtileg eldhúsinnrétting. Á gólfum eru fallegar terrazzo-flísar. Hiti er í gólfi í báðum rýmum. 
Garðurinn er skjólgóður og snýr til suðurs. Hellulögð verönd er fyrir framan íbúðina. Falleg aðkoma er að húsinu að framanverðu þar sem hefur verið hellulagt og sett upp skýli fyrir ruslatunnur.  
Lóðin er 541,4 fm, sameiginleg og óskipt. 
Að sögn seljanda hefur eftirfarandi verður endurnýjað:
2019 nýjar neysluvatns- og ofnalagnir, dregið í nýtt rafmagn, ný rafmagnstafla, bað og eldhús endurnýjað, gólfefni tekin af og flotað, hiti settur í gólf í forstofu, á baði og eldhúsi/stofu, nýir gluggar alls staðar nema á austurhlið. (nýr gluggi í stofu,) ný útihurð - 2020 drenað - 2021 húsið múrviðgert að utan - 2022 20 fm verönd sett fyrir framan inngang - 2023 hús málað - 2026 útbúin stúdíóíbúð með baðherbergi í hluta eignarinnar.

Breytingar hafa verið gerðar á skipulagi íbúðarinnar þannig að hluti (helmingur) geymslu sem skráð er sameign 001 og 0102 í eignaskipasamningi er orðin hluti af baðherbergi og búið er að útbúa studíóíbúð þar sem áður var eldhús og geymsla samkvæmt teikningum. Teikning í auglýsingu er samkvæmt núverandi skipulagi unnin uppúr teikningum í eignaskiptasamningi eingöngu til upplýsinga. 

Eignin Ásvallagata 69 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-2445, birt stærð 91.6 fm. Nánar tiltekið eign merkt 00-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir: Daði Runólfsson Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, tölvupóstur dr@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/12/201838.900.000 kr.34.100.000 kr.91.6 m2372.270 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Boðagrandi 6
Efsta hæð
Skoða eignina Boðagrandi 6
Boðagrandi 6
107 Reykjavík
97 m2
Fjölbýlishús
312
855 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Ljósvallagata 30
Kjallaraíbúð
Ljósvallagata 30
101 Reykjavík
74,4 m2
Fjölbýlishús
312
819 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Bergþórugata 29
Bergþórugata 29
101 Reykjavík
102,7 m2
Fjölbýlishús
422
972 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24
Skoða eignina Borgartún 24
Borgartún 24
105 Reykjavík
81,4 m2
Fjölbýlishús
312
982 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin