Domus Fasteignasala á Norðvesturlandi kynnir til sölu íbúð á annarri hæð við Hnjúkabyggð 27 á Blönduósi.
Um er að ræða íbúð í fjöleignarhúsi. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 125,1 fermetrar, þar af er geymsla 7,7 fermetrar.
Húsið er steinsteypt og byggt árið 1976 og hefur verið tekið til töluverðra endurbóta að utan. Meðal annars hefur verið skipt um glugga á suðurhlið byggingarinnar. Íbúðin sem hér um ræðir er á annarri hæð og er númer 1-D. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð og meðal annars er nýlegt eldhús, nýlegt parket á gólfum, nýleg ljós og nýlegir tenglar. Baðherbergi og sturturými hafa jafnframt verið endurbætt.
Nánari lýsing: Stofa: Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi og stórum gluggum með fallegu útsýni. Útgengt er úr stofu á svalir. Íbúðin býður í raun upp á tvær stofur og tvennar svalir.
Eldhús: Eldhús er með fallegri dökkri innréttingu og parketi á gólfi. Innrétting er nýleg og lítur vel út.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú og eru þau öll með parketi á gólfum og viðarlituðum fataskápum. Mjög gott útsýni er úr svefnherbergjum.
Baðherbergi og sturturými: Baðherbergið er með flísum á gólfi, upphengdu salerni, innréttingu og tengi fyrir þvottavél. Við hlið baðherbergis er sér sturturými með walk-in sturtu, Fibo Trespo klæðningu á veggjum og flísalögðu gólfi.
Viðhald og endurbætur Í september 2025 var ráðist í töluverðar endurbætur á íbúðinni. Meðal framkvæmda voru:
- Ný eldhúsinnrétting sett upp.
- Nýtt parket lagt á alla íbúðina.
- Neysluvatnslagnir og stofnlagnir voru endurnýjaðar að hluta, frá inntaksrými og upp undir plötu á 2. hæð.
- Sett var upp nýtt upphengt salerni.
- Veggur við salerni var klæddur með Fibo Trespo plötum.
- Sturturými var klætt með Fibo Trespo plötum og gólf flísalagt.
- Walk-in sturta útbúin án hefðbundins sturtubotns.
- Öll íbúðin máluð.
- Ný ljós sett upp og rafmagn yfirfarið að hluta.
Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 sol@domus.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 71.920 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.