Fasteignaleitin
Skráð 2. júní 2026

Víðihlíð 3 íbúð 104

Nýbygging • FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-604
102.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
76.900.000 kr.
Fermetraverð
750.244 kr./m2
Fasteignamat
31.350.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2541215
Landnúmer
232215
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
2026
Raflagnir
2026
Frárennslislagnir
2026
Gluggar / Gler
2026, þrefalt gler.
Þak
2026 - Þakið er kalt timburþak/sperruþak (A-þak). Það er klætt með bárustáli og með öndunardúk undir klæðningu.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
16,69
Upphitun
Hitaveita - gólfhiti. Handklæðaofn er á baðherbergi
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Víðihlíð 3 íbúð 104 - Nýbygging

Glæsilegt 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð og með sér inngangi í ný fjölbýlishúsi í Hörgársveit - stærð 102,5 m²


* Steypt hús með steyptri loftaplötu og timbur þaki.
* Ál/tré gluggar, þrefalt gler í gluggum.
* Hvítar innhurðar.
* Innréttingar eru frá Ikea.
* Ísskápur með frysti, ofn, örbylgjuofn, helluborð og vifta fylgja með við sölu.
* Loft verða klædd með hljóðdempandi plötum nema baðherbergi.
* Eignin uppfyllir hljóðvistarflokk A samkvæmt staðlinum ÍST 45 sem er umfram lágmarkskröfur byggingarreglugerðar um kröfur fyrir hljóðeinangrun innbyrðis á milli íbúðareininga.
* Áætlaður afhendingartími eignar er ágúst / september 2026


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, baðherbergi með þvottaaðstöðu, þrjú svefnherbergi og geymslu.

Forstofa er með ljósum flísum á gólfi og þreföldum hvítum fataskáp.
Eldhús, matt dröppuð L-laga innrétting með borðplötu úr harðplasti í hvítu marmaralíki. Veggplötur á milli skápa eru samskonar og borðplata, marmaralíki. Ísskápur með fyrsti, span helluborð, ofn,örbylgjuofn og vifta fylgja með. Forstykki fyrir innbyggða uppþvottavél fylgir með.
Stofa og eldhús eru í björtu alrými með gluggum til tveggja átta. Harðparket verður á gólfum og innfelld lýsing í loftum. Úr eldhúsi er gengið út á steypta verönd, skráð 6,3 m² að stærð.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, speglaskáp, upphengdu wc, walk-in sturtu, innfelldri lýsingu og opnanlegum glugga. Innrétting er á baðherberginu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með hvítum fataskápum. Innfelld lýsing er í lofti í hjónaherbergi. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,9 , 9,7 og 9,0 m².
Geymsla er skv. teikningum 6,3 m² að stærð og þar er harðparket á gólfum. 

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla/inntaksrými er undir stigapalli skráð 26,0 m² að stærð

Annað
- Steypt verönd.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni og handklæðaofn á baðherbergi.
- Vélræn loftræsting er úr baðherbergi og geymslu og í hjónaherbergi er „lunga“.
- Ídráttarrör eru úr inntaksrými út í bílaplan fyrir mögulega rafhleðslu.
- Nánari skilalýsingu má nálgast hjá fasteignasölu.
- Byggingarverktaki: Hamrar Byggingarfélag ehf.


Eignin er í einkasölu

Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignar, 0,3% af brunabótamati eignar þegar það verður lagt á.

Þrívíddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar - eitthvað misræmi getur verið á milli þeirra og aðalteikninga. 

Upplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.
Allt efni er birt með fyrirvara um hugsanlegar villur.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (5)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 11C 408
Opið hús:05. júní kl 17:00-17:30
Jöfursbás 11C 408
112 Reykjavík
55.4 m2
Fjölbýlishús
312
966 þ.kr./m2
53.500.000 kr.
Skoða eignina Samtún 34
Skoða eignina Samtún 34
Samtún 34
105 Reykjavík
59.1 m2
Fjölbýlishús
212
929 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Sólmundarhöfði 7
Bílastæði
Sólmundarhöfði 7
300 Akranes
188.8 m2
Fjölbýlishús
323
731 þ.kr./m2
138.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 9 íb 103
Vorbraut 9 íb 103
210 Garðabær
58.9 m2
Fjölbýlishús
211
1068 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin