Fasteignaleitin
Skráð 22. júlí 2026

Álftadæl með landi og hesthúsi

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-803
174,131.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
476 kr./m2
Fasteignamat
1.540.000 kr.
Brunabótamat
81.150.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
2306568
Landnúmer
207710
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer íbúðar
00
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt / rotþró
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Ragmagnskynding
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Annað svefnherbergið er skráð sem geymsla samkvæmt samþykktum teikningum.
Kvöð / kvaðir
Kaupandi samþykkir að heimila kvöð um aðgengi að aðliggjandi landi, þar á meðal samnýtingu afleggjara og veglagningu, samkvæmt nánara samkomulagi.
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna Álftadæl í Flóahreppi, íbúð og hesthús, skammt frá Selfossi.
Um er að ræða 17,4 hektara landspildu með 131,2 fm húsnæði sem skiptist í 86,7 fm íbúðarhluta og 44,5 fm hesthús. Húsið var byggt árið 2008. Við húsið er hestagerði og í hesthúsinu eru þrjár rúmgóðar stíur.
Spennandi tækifæri fyrir hestafólk og aðra sem vilja búa í rólegu og fallegu sveitaumhverfi, en jafnframt í stuttri akstursfjarlægð frá allri helstu þjónustu á Selfossi.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða með tölvupósti á elka@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Gengið er inn í anddyri. Íbúðarhlutinn skiptist í  stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.
Hesthúsið er 44,5 fm að stærð og þar eru þrjár rúmgóðar stíur. Gluggi er á milli hesthúss og íbúðar. Hestagerði er fyrir utan hesthúsið.

Álftadæl er mjög vel staðsett í Flóahreppi, skammt frá Gaulverjabæjarvegi og stutt frá Selfossi.
Þar er að finna fjölbreytta verslun og þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og afþreyingu.
Staðsetningin sameinar friðsælt sveitaumhverfi ásamt nálægð við stærsta þjónustukjarna Suðurlands.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2008
131.2 m2
Fasteignanúmer
2306568
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
43.700.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
43.700.000 kr.
Brunabótamat
81.150.000 kr.
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórsstígur 2b
Skoða eignina Þórsstígur 2b
Þórsstígur 2b
805 Selfoss
Jörð/Lóð
9.500.000 kr.
Skoða eignina Þórsstígur 2a
Skoða eignina Þórsstígur 2a
Þórsstígur 2a
805 Selfoss
Jörð/Lóð
6.900.000 kr.
Skoða eignina Víðibrekka 34
Skoða eignina Víðibrekka 34
Víðibrekka 34
805 Selfoss
Jörð/Lóð
15.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurbakki 13
Skoða eignina Suðurbakki 13
Suðurbakki 13
805 Selfoss
Jörð/Lóð
23.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin