Fasteignaleitin
Skráð 27. júní 2026

Bergstaðastræti 36

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
79.8 m2
4 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
938.596 kr./m2
Fasteignamat
70.250.000 kr.
Brunabótamat
38.700.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Jón Bergdal
Aðalsteinn Jón Bergdal
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1902
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2007022
Landnúmer
102063
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
Ástand ekki vitað
Þak
Ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna:  FRÁBÆR STAÐSETNING Í MIÐBÆNUM – Einstök 4 herbergja íbúð með óskráðu 30 fm háalofti í reisulegu timburhúsi með steyptum kjallara. Húsið var málað að utan 2021. Íbúðin skiptist í forstofu þaðan sem er stigi upp í íbúðina. Komið inn i miðjurými á aðalhæð þar sem eru eldhús, 3 stofur og svefnherbergi með fataherbergi innaf auk baðherbergis. Auðvelt að nýta stofur sem svefnherbergi. Úr miðjurýminu er einnig stigi út á svalir og annar upp á óskráð háaloft þar sem er þvottaaðstaða auk margra annarra nýtingarmöguleika. 
Húsið er reisulegt timburhús og stóð upphaflega við Hverfisgötu 40 en var flutt á núverandi stað árið 1979. Þá hafði verið grafinn grunnur fyrir það, allar leiðslur lagðar í jörðu og út á götu og undirstöður steyptar ásamt kjallaraveggjum. Á sama tíma voru allar lagnir í húsinu yfirfarnar og skipt um þar sem þurfti.  Á árunum 1993-1995 var skipt um bárujárn á útveggjum og tjörupappaklæðningu undir henni. Þá var einnig lagað tréverk það litla sem þurfti. Síðan var skipt um pappa og járn á þaki hússins (ofangreindar upplýsingar eru fengnar úr ritgerð Ásgeirs Bjarna Ásgeirssonar um húsið 2015).

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.     Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína.

Nánari lýsing:
Forstofa:
Gengið upp útitröppur bakatil við húsið. Komið inn í forstofu á fyrstu hæð. Viðarstígi upp i íbúð.   
Eldhús er með hvítri innréttingu með skúffum og tengi fyrir uppþvottavél.  
Stofur/skrifstofa: Í dag eru rýmin nýtt sem 2 stofur og skrifstofa.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með fataherbergi innaf með glugga.
Baðherbergi er rúmgott með baðkari, handklæðaofni og glugga. Lítil innrétting við vask.
Gólfefni:  Upprunalegar viðarfjalir á gólfum nema í  forstofu og baðherbergi þar sem eru korkflísar á gólfi.  
Háaloft:  Rétt rúmlega 30 fm og er hæð við mæni um 170 cm og skiptist í 3 ganga með þremur fallegum hálf-hringlaga gluggum. Hefur verið nýtt á marga mismunandi vegu gegnum árin. Í dag er þvottaaðstaða í einum gang háaloftsins og er þar vinnuborð með skolvaski.
Svalir: Fallegar skjólgóðar svalir í suðvestur. Gengið út á þær um stiga sem dreginn er niður til að tengja svalirnar.

Mjög sérstök og ævintýraleg íbúð í reisulegu timburhúsi með mikla sögu á frábærum stað í miðbænum. Stutt í alla þjónustu og Hljómskálagarðurinn og allt það skemmtilega sem miðbærinn hefur upp á að bjóða í göngufæri. Stutt í leik-, grunn- og menntaskóla.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is


 



 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grettisgata 79
3D Sýn
Skoða eignina Grettisgata 79
Grettisgata 79
101 Reykjavík
83.7 m2
Fjölbýlishús
423
990 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkagata 5
móa_vefur (1).jpg
Skoða eignina Fálkagata 5
Fálkagata 5
107 Reykjavík
73.9 m2
Fjölbýlishús
212
946 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvallagata 22
Kjallaraíbúð
Opið hús:22. júlí kl 12:00-12:30
Ásvallagata_22-28.jpg
Skoða eignina Ásvallagata 22
Ásvallagata 22
101 Reykjavík
93.8 m2
Fjölbýlishús
312
851 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Einholt 9
Opið hús:20. júlí kl 16:30-17:00
Library - 1 of 1.jpeg
Skoða eignina Einholt 9
Einholt 9
105 Reykjavík
71.8 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
59.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin