Fasteignaleitin
Skráð 4. apríl 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
176 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
165.000.000 kr.
Fermetraverð
937.500 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
930240724
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
nýlegt
Svalir
Stórar verandir með glæsilegri aðstöðu
Upphitun
Kæling/hiti/gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
*GLÆSILEG LÚXUSVILLA Á FRÁBÆRUM GOLFVELLI*-*VÖNDUÐ HÚSGÖGN OG HÚSBÚNAÐUR FYLGIR*
Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali
GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, 
GSM 777 4277. karl@spanareignir.is

Glæsilegt og vel hannað nýlegt  156 fm. einbýlishús á einni hæð ásamt ca. 20 fm. gestahúsi/sérstæðu vinnurými eða samtals um 176 fm. eign á stórri lóð (1.200 fm) á góðum stað á Las Colinas golfvallasvæðinu, sem hefur verið valið eitt besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Stór einkagarður með einkasundlaug, útisturta og glæsilegur einka púttvöllur. Útieldhús með góðri grill aðstöðu, sérstætt aukahús á lóð sem hægt er að nýta sem vinnuaðstöðu, geymslu eða gestahús.  Yfirbyggt bílskýli fyrir tvo bíla inni á lokaðri lóð. Sólarrafhlaða sem sparar allt að 60-70% af rafmagnsreikningnum. Þakverönd.
Þrjú svefnherbergi og þrjú baðherbergi, björt og góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Góð tenging við garðinn, stóra verönd með frábærri aðstöðu og er hægt að ganga út í garðinn frá öllum rýmum.  Þvottahús inn af eldhúsi. Vönduð húsgögn og húsbúnaður fylgir, ásamt fallegum útihúsgögnum. Gólfhiti er í öllu húsinu. Sannarlega lúxuseign með öllu fyrir kröfuharða. Gott fjölskylduhús þar sem vel fer um alla og hægt að flytja beint inn.


Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð á svæðinu og auk þess tennis- og körfuboltavellir. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Fleiri góðir golfvellir eru í næsta nágrenni við Las Colinas golfvöllinn, t.d.   La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella, Lo Romero og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb.
Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.
Húsið er sérlega vel skipulagt og gott flæði í því.

Verð 1.100.000 Evrur ( 165.000.000ISK) + kostn. við kaupin miðað við gengi 1Evra=150ISK.

TIL AFHENDINGAR STRAX, EÐA EFTIR NÁNARA SAMKOMULAGI.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir. 

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.


Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, gólfhiti, golf, þakverönd, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
930240724

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
176 m2
Einbýlishús
423
938 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílskúr
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
158 m2
Einbýlishús
533
1044 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
162 m2
Einbýlishús
423
1083 þ.kr./m2
175.400.000 kr.
Skoða eignina Giljaland 3
Bílskúr
Skoða eignina Giljaland 3
Giljaland 3
108 Reykjavík
235.1 m2
Raðhús
714
723 þ.kr./m2
170.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache