Fasteignaleitin
Skráð 4. júlí 2026

Vættagil 24

ParhúsNorðurland/Akureyri-603
172.5 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
117.900.000 kr.
Fermetraverð
683.478 kr./m2
Fasteignamat
95.900.000 kr.
Brunabótamat
94.330.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Byggt 1995
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2221983
Landnúmer
174721
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
1995
Raflagnir
1995
Frárennslislagnir
1995
Gluggar / Gler
1995
Þak
1995 - Skv. eigendum þyrfti að yfirfara skrúfur í þakjárni.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Tveir inngangar
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Skv. eigendum þyrfti að yfirfara skrúfur í þakjárni.
Gallar
* Sprunga er í gleri í stofu og viðbyggingu. Móða er á milli í nokkrum. * Skipta þarf um snertiborð á örbylgjuofni * Önnur uppþvottavélin á það til að stoppa og klára ekki þvottaprógrammið. * Pirro hreinsun í bakaraofninum virkar ekki. 
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Vættagil 24  - Vönduð og vel innréttuð 4-5 herbergja parhúsaíbúð á 2. hæðum við vinsæla götu í Giljahverfi - stærð 172,5 m²


Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Neðri hæð :
Forstofa, sjónvarphol, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, viðbygging og bílskúr sem búið er að skipta upp í forstofu og fataherbergi / geymsluskápa.
Efri hæð : Hol, eldhús, stofa, baðherbergi og tvö svefnherbergi. 

Forstofa er með flísum á gólfi og stórum fataskápum. Steyptur og flísalagður stigi er upp á efri hæðina. Sérsmíðaðir skápar undir stigauppgöngu og geymsla undir stigapalli. 
Eldhús og stofa eru í opnu og björtu rými þar sem gluggar eru til þriggja átta og hurð út til vesturs á rúmgóða verönd. Flísar eru á gólfi og hljóðdempandi plötur í loftum með innfelldri lýsingu. Í eldhúsi er vönduð sérsmíðuð innrétting og eyja, hvít og hnota og með Fenix borðplötu. Miele tæki. Tvær uppþvottavélar.
Sjónvarpshol er á neðri hæðinni með flísum á gólfi og innfelldri lýsingu. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll með flísum á gólfum og tvö með fataskápum. Í öðru barnaherberginu er sérsmíðað hvítt skrifborð og fellistigi upp á geymsluloft. Stærðir herbergja eru skv. teikningum 10,4 - 10,9 og 11,3 m².
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð. Á efri hæðinni eru flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting með steinplötu og upphengt wc, baðkar, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.  Baðherbergi á neðri hæð er með flísum á gólfi og veggjum, spónlagðri innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni, tvöfaldri sturtu og saunaklefa með saunaofni og infra red ljósum.
Bílskúr hefur verið skipt upp í tvö rými, forstofu og fataherbergi /geymsluskápa. Þar eru flísar á gólfum og mjög gott skápapláss. 
Þvottahús er inn af bílskúrnum með flísum á gólfi, "handklæðaofni" og sprautulakkaðri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Viðbygging var byggð við suðurhliðina og er innangengt í hana í gegnum baðherbergi, einnig er hægt að ganga inn í hana utan frá. Hún er skráð skv. teikningum 7,9 m² að stærð og með flísum á gólfi og góflhita. 

Fyrir framan er hellulagt bílaplan með hitalögnum í, lokað kerfi.
Garðurinn er gróinn og fallegur. Sameiginlegar hellulagðar tröppur eru upp á baklóðina þar sem er stór timbur verönd með heitum potti/rafmagns, geymsluskúr og æfingarstöð.
 
Annað
- Gólfhiti er á neðri hæðinni í öllum rýmum fyrir utan bílskúr og þvottahús og á efri hæðinni eru ofnar og rafmagnsgólfhiti.
- Netlagnir eru í öllum herbergjum.
- Rafmagnshitaþræðir er í þakrennum.
- Heitur pottur á verönd fylgir með við sölu eignar. 
- Eignin er laus til afhendingar í nóvember 2026.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1995
29.2 m2
Fasteignanúmer
2221983
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.580.000 kr.

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureiturinn A 701
Efsta hæð
Heitur pottur
Orkureiturinn A 701
108 Reykjavík
182.5 m2
Fjölbýlishús
423
1562 þ.kr./m2
285.000.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 804
Efsta hæð
Heitur pottur
Orkureiturinn D1 804
108 Reykjavík
169.9 m2
Fjölbýlishús
322
1324 þ.kr./m2
225.000.000 kr.
Skoða eignina Jóninnuhagi 4 íbúð 103
Jóninnuhagi 4 íbúð 103
600 Akureyri
67.5 m2
Fjölbýlishús
312
873 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Víkurbraut 13
Skoða eignina Víkurbraut 13
Víkurbraut 13
230 Reykjanesbær
171 m2
Fjölbýlishús
412
350 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin