Fasteignamiðstöðin kynnir eyjuna Kiðey, póstnúmer 341 Stykkishólmi, fasteignanúmer 211-5638 og landeignanúmer L136982 ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber.Hver vill ekki vera kóngur í ríki sínu. Nú er tækifæri á að eignast þetta krúnudjásn, þessa myndarlegu eyju sem er Kiðey í Helgafellssveit. Eyjan Kiðey í Helgafellssveit, er skilgreind sem jörð og skráð lögbýli ( landbúnaðarjörð ) og hefur þar með ýmis réttindi. Undanfarin 25 ár hefur verið stundaður sjálfsþurftarbúskapur með kindur allt árið. KIðey er frekar hálend miðað við aðrar Breiðafjarðareyjar. Landstærð er talin vera rúmir 40 hektarar.
VIð eyjuna er aðdjúpt og ágætis báta lendingar, í flestum vindáttum. Mikil skelrækt ( BLÁSKEL) hefur verið stunduð innan við eyjuna , landmegin. Gott er að veiða fisk með stöng frá klettum eyjarinnar. Um tíma hefur gIldru veiði í sjó verið stunduð sem sportveiði. Landhelgi í sjó er umhverfis eyna er samkvæmt lögum um veiðar á strand-jörðum.
Fuglavarp er í einni, um 50 æðarkolluhreyður að jafnaði, Sílamáfur verpir mikið í Kðey. Mófuglar verpa nú orðið einnig nokkuð í eynni. Stelkur og Rita. RItan verpir mikið í klettabeltum norðan, austan í eyjunni. Teista er staðfugl í Kiðey, en aðeins nokkur pör. Lundi var forðum í þúsundatali í Kiðey, en honum var útrýmt með ofveiði og netaveiði yfir lunda holunum, en hann heldur sig mikið á sjónum stutt frá kiðey og verpir mikið í eyju rétt utan við Kiðey.
Sérfræðingar telja auðvelt að laða lunda aftur til að verpa í Kiðey ef vilji er til slíks, einfaldlega með því að koma fyrir nokkrum gerfi lundum á bjarg brúnum eyjunnar í nágrenni við þær um það bil 1000 lundaholur sem enn finnast í eyjunni.
Þessi mikilfenglega náttúruparadís getur nú verið til sölu til réttra aðila, og aðeins fyrir virðulegt verð.
Staðsettning á korti
https://landeignaskra.hms.is/?v_mode=landeign&v_land=136982&v_lsk=0-0&v_sf=10105927Tilvísunarnúmer: 10-2844
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, Hlíðarsmára 17 201 Kópavogi - sími: 550 3000
tölvupóstfang: fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 - tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is
Guðrún Olsen síma 550 3000 - tölvupóstfang gudrun@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 - tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,
til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.