Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg og mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu á efstu hæð með suður svalir. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð með arkitektahönnun á alrými, eldhúsi og baðherbergi en hönnun er frá virtum arkitekt frá Brasilíu að nafni Julliana Wagner. Þar var m.a. endurnýjað gólfefni, rafmagn, eldhús, baðherbergi, allar innréttingar og hurðir. Alrými tengir eldhús, borðstofu og stofu saman, með útgengi á suðursvalir sem snúa að skjólsælum bakgarði. Tvö svefnherbergi, baðherbergi og rúmgott þvottahús. Eignin er skráð 103,1 fm, þar af er stæði í bílageymslu skráð 12,5 fm. Nánari lýsing : Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Glæsilegt eldhús með arkitektahönnun,
Mont Blanc Quartzite borðplata frá
Granitsteinar. Stór eldhúseyja með pláss fyrir barstóla beggja megin. Steinplötur eru á veggjum milli efri og neðri skápa, ásamt panelklæðningu í lofti sem rammar inn svæðið. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með parketi á gólfi. Stofa og borðstofa tengjast eldhúsi og eru með stórum gluggum sem veita mikla birtu og útgengi á svalir. Hluti af vegg í stofu er klæddur með viðarpanel og steinplötu.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fallegri panelklæðningu á einum vegg. Góðir fataskápar.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi, hlýlegu veggfóðri og góðu skápaplássi.
Baðherbergi: Algjörlega endurnýjað baðherbergi í arkitektahönnun með stórum marmaramynstruðum steinflísum á gólfi og veggjum. Svört blöndunartæki, sturta með glervegg, innrétting með frístandandi handlaug og upphengdu salerni. Handklæðaofn er á baðherberginu.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús innan íbúðar með flísum á gólfi, góðu vinnuplássi á borðplötu, subway flísum á vegg og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Nýtist vel sem geymsla innan íbúðar.
Svalir: Suðursvalir með harðviðarflísum á gólfi, pláss fyrir útihúsgögn og grill.
Bílastæði: Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu asamt sérmerktu stæði beint fyrir utan inngang hússins. Einnig fylgir pláss í sameiginlegri dekkjageymslu í bílakjallara.
Sameign: Nýlegur myndavéladyrasími ásamt öryggismyndavélum við aðalinngang og inngang frá bakgarði í gegnum hjólageymslu.
Viðhald og endurbætur Íbúðin var að mestu endurnýjuðu árið 2021,
Art-Verk ehf sáu um framkvæmdina, en það var gerð arkitektahönnun á alrými, eldhúsi og baðherbergi. Einnig voru gólfefni, hluti af rafmagni, eldhús, baðherbergi, allar innréttingar og hurðir endurnýjaðar. Efni frá
Birgisson & Ebson. Grófir hraunveggir voru heilspartlaðir og gólf flotuð.
2025 var járn og pappi á þaki endurnýjað.
Umhverfi og staðsetning: Íbúðin er staðsett í rólegu og grónu hverfi með grænum svæðum í kring. Næg bílastæði eru við húsið og stutt í helstu þjónustu, skóla og afþreyingu.
Nánari upplýsingar veitir Alfreð Valencia löggiltur fasteignasali í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook