Fasteignaleitin
Skráð 26. ágúst 2026

Snæfell

EinbýlishúsVestfirðir/Hólmavík-510
210.9 m2
5 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
284.021 kr./m2
Brunabótamat
94.350.000 kr.
Byggt 1948
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
21288931
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Snæfell á Hólmavík, rúmgott og karakterríkt einbýlishús á tveimur hæðum, heildar fermetrafjöldi er 210,9 m2. Skipulagið er fjölskylduvænt með fimm svefnherbergjum, góðum sameiginlegum rýmum. Grónum garði og palli fyrir framan og aftan hús.

Nánari lýsing:

Neðri hæð:
Gengið er inn í forstofu og þar innaf er geymsla. Á hæðinni er rúmgott sjónvarpshol. Stofa með kork á gólfi og innbyggðri bókahillu. Viðarklætt loft og gluggar setja mikinn svip á rýmið.
Baðherbergi er á hæðinni með þvottaaðstöðu og þaðan er útgengt út í garð.
Þar sem áður var bílskúr hefur verið útbúið mjög rúmgott og sjarmerandi eldhús. Eldhúsið er bjart og hlýlegt með góðu rými fyrir eldamennsku og samveru. Úr eldhúsinu er stór rennihurð sem opnast út á rúmgóðan pall og tengir þannig innirýmið skemmtilega við garðinn. Innst í eldhúsinu er geymsla, sem er í þeim hluta bílskúrsins sem eftir stendur. Frá eldhúsinu liggur stigi upp í herbergi á efri hæð,
Efri hæð:
Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi ásamt baðherbergi. Af herbergisgangi er útgengt á svalir, þar er útsýni út á sjóinn. Fallegt útsýni er úr húsinu yfir eldri hluta Hólmavíkur og nærumhverfið.
Annað:
Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á undanförnum árum samkvæmt upplýsingum seljenda. Meðal annars hefur verið unnið að endurbótum á eldhúsi, gólfum, rafmagni og hitakerfi auk þess sem útisvæði hefur verið endurbætt með gerð sólpalls. Þá hafa ýmsar aðrar endurbætur og viðhaldsframkvæmdir verið gerðar á eigninni.
Seljendur hafa tekið saman ítarlegan lista yfir framkvæmdir og endurbætur sem unnar hafa verið á eigninni frá árinu 2016. Áhugasamir geta óskað eftir að fá framkvæmdalistann sendan hjá fasteignasala.

Snæfell er góð fjölskyldueign á Hólmavík þar sem er fallegt umhverfi og mikil nálægð við náttúruna.

Nánari upplýsingar veitir María Mjöll Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8663934 eða maria@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.



 
 



 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Keldugata 10
Bílskúr
Skoða eignina Keldugata 10
Keldugata 10
210 Garðabær
224.4 m2
Raðhús
614
668 þ.kr./m2
150.000.000 kr.
Skoða eignina Nauthólar 2
Heitur pottur
Skoða eignina Nauthólar 2
Nauthólar 2
800 Selfoss
190.7 m2
Einbýlishús
514
561 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 35
Skoða eignina Hlíðarvegur 35
Hlíðarvegur 35
580 Siglufjörður
208 m2
Einbýlishús
716
336 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 13
Bílskúr
Skoða eignina Hlíðarvegur 13
Hlíðarvegur 13
580 Siglufjörður
213.3 m2
Einbýlishús
71
211 þ.kr./m2
45.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin