Fasteignaleitin
Skráð 13. mars 2026

Bakkatröð 38

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-605
238.8 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
145.000.000 kr.
Fermetraverð
607.203 kr./m2
Fasteignamat
117.900.000 kr.
Brunabótamat
135.500.000 kr.
Mynd af Björn Guðmundsson
Björn Guðmundsson
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2338711
Landnúmer
216053
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt síðan 2023
Raflagnir
Nýtt síðan 2023
Frárennslislagnir
Nýtt síðan 2023
Gluggar / Gler
Nýtt síðan 2023
Þak
Nýtt síðan 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd til austurs og suðurs
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Bakkatröð 38


Glæsilegt og einstaklega vel skipulagt nýlegt 5 herbergja einbýlishús með sambyggðum bílskúr í hinu afar vinsæla og fjölskylduvæna Hrafnagilshverfi. Um er að ræða vandaða eign þar sem hugað hefur verið að gæðum, rými og þægindum fyrir daglegt líf.

Garðurinn er gróinn og aðlaðandi með heitum og köldum potti á steyptri verönd sem snýr til austurs. Fyrir framan hús eru þrjú steypt bílastæði, þar af tvö með snjóbræðslu. Aðkoma að eigninni er snyrtileg og vel mótuð með fallegum hlöðnum gróðurbeðum og hellulagðri gönguleið.

Eignin er samtals 238,8 fm, þar af er bílskúr 40,1 fm og skráð geymslurými 16,6 fm. Að auki er hluti af geymslulofti yfir bílskúr undir súð og vel nýtt skrifstofu/geymslurými yfir hluta íbúðar sem að ekki telst til fermetrafjölda.

Eignin býr yfir eftirsóttum nútímagæðum á borð við loftskiptikerfi, upptekin loft með vönduðum hljóðvistarlausnum í alrými og hjónasvítu, rúmgott aðalbaðherbergi með bæði sturtu og baðkari, sér baðherbergi og fataherbergi í hjónasvítu og einstaklega stórt og vel útbúið eldhús. Fallegir franskir gluggar prýða húsið og fulningshurðar og innréttingar ramma inn hlýlegan og fágaðan karakter.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, borðstofu og stofu í opnu og björtu rými, þrjú barnaherbergi, hjónasvítu með fataherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og gott hol sem nýtist vel sem sjónvarps‑ eða samverurými.

Anddyri er með flísum á gólfi, fataskáp og handklæðaofni.
Borðstofa og stofa eru í opnu rými ásamt eldhúsi, með parketi á gólfi og uppteknu, panelklæddu lofti með vandaðri hljóðvistarlausn. Rýmið er bjart með stórum gluggum og útgengt er úr stofu um tvöfalda hurð á steypta verönd til austurs, þar sem góð aðstaða er til að grilla og njóta útiveru.
Eldhús er rúmgott og vel skipulagt með afar miklu skápa‑ og bekkjarplássi í fallegri innréttingu. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, frystiskápur og uppþvottavél sem allt fylgir, vandaður bakaraofn með gufukerfi í vinnuhæð, niðurfellt spanhelluborð með innbyggðri viftu og tækjaskápur.
Gangur/hol er parketlagt og tilvalið sem sjónvarps‑ eða seturými, með góðu plássi fyrir sófa þar sem vítt er til veggja.
Barnaherbergi eru þrjú, öll um 10 fm eða stærri, með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Aðalbaðherbergi er rúmgott og vel útbúið, með flísum á gólfi og hluta veggja. Bæði sturta og baðkar er í rýminu, upphengt salerni, handklæðaofn og innfelld blöndunartæki í sturtu. Útgengt er beint út af baðherbergi út á stóra yfirbyggða verönd með snjóbræðslu, þar sem heitur og kaldur pottur skapa notalegt útisvæði.
Hjónasvíta er glæsileg og vel afmörkuð, með parketi á gólfi og uppteknu, sérsniðnu panelklæddu lofti og innfelldu plássi fyrir sjónvarp. Inn af herberginu er fullbúið baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, upphengdu salerni, innréttingu við vask, handklæðaofni og sturtu með innfelldum blöndunartækjum. Einnig er rúmgott fataherbergi með miklu skápaplássi og fallegri lýsingu.
Þvottahús er vel skipulagt, með innréttingu, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vask, handklæðaofni og miklu skápaplássi. Þaðan er útgengt til norðurs á steypta stétt.

Bílskúr er bjartur og rúmgóður og innangengur bæði úr þvottahúsi og um sérinngang sem snýr til suðurs. Þar er rafdrifin, breið og há innkeyrsluhurð, vélslípað gólf og gluggar sem veita góða birtu.
Geymsluloft er opið upp úr bílskúr með aðgengi um parketlagðan stiga. Lofthæð þar er góð og athafnarými umtalsvert.
Af geymslulofti er innangengt í smekklega innréttaða skrifstofu eða fjölnota rými, með parketi á gólfum, veggjaþiljum og innfelldri lýsingu. Kaldar geymslur eru bak við veggjaþiljur sitt hvoru megin við inngang rýmisins sem hýsir loftskiptikerfi hússins.

Lóðin er með steyptum stéttum í kringum húsið en grasflöt að öðru leyti. Steypt verönd snýr til austurs og suður, með hitaveitupotti og köldu kari. Óhindrað útsýni er til austurs þar sem útivistasvæði er í þróun með gróðri, gönguleið og tjörn, auk þess sem falleg fjallasýn er til vesturs.
 
Annað:
-Gólfhiti
-Vélrænt loftskiptikerfi
-Innfeld lýsing að stórum hluta 
-Flóttaleiðagluggar úr öllum svefnherbergjum
-Ljósleiðari
-Shelly rofakerfi fyrir ljós
-Skýli fyrir fjórar ruslatunnur
-Hellulögð stétt heim að húsi
-Mikil uppbygging á svæðinu
-Örstutt er í skóla, leikskóla og íþróttamiðstöð og engar umferðargötur á þeirri gönguleið.
-Um 13 mínútna akstur til Akureyrar

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2023
40.1 m2
Fasteignanúmer
2338711
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
18.000.000 kr.

Myndir (67)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb204
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 13:00-14:00
Vetrarbraut 2-4 íb204
210 Garðabær
144.2 m2
Fjölbýlishús
413
1005 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 3 (Vesturvin 2) íb 504
móa_vefur (16).jpg
Ánanaust 3 (Vesturvin 2) íb 504
101 Reykjavík
99.9 m2
Fjölbýlishús
312
1290 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Skoða eignina Boðaþing (útsýni) 3
Bílastæði
Boðaþing (útsýni) 3
203 Kópavogur
116.2 m2
Fjölbýlishús
312
1023 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 13:00-14:00
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
113 m2
Fjölbýlishús
423
1105 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin