Valborg fasteignasla kynnir í einkasölu Tröllahraun 45, 810 Hveragerði.
Um er að ræða parhús með innbyggðum bílskúr.
Eignin er staðsett á skjólgóðum og fallegum stað upp við Hamarinn.
Stærð íbúðar er 104,6 m2 og bílskúrs 26,8 m2, samtals 131,4 m2 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Tvö svefnherbergi, fataherbergi, forstofa, stofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og bílaskúr.
Gert er ráð fyrir bílastæði fyrir tvo bíla við hverja íbúð.
Verð er miðað við að eignin sé seld á byggingarstigi 2, matstigi 4 (fokheld). Auk þess verður einangrun og rakavörn komin, rafmagn og hiti komið inn og gólfhiti tengdur að hluta.
Auglýst verð miðast við byggingastig 2 en hægt er að fá eignina lengra komna.
Tilbúin til spörslunar að innan, fullfrágengin að utan með grófjafnaðari lóð er kr. 79.000.000,-
Hægt að semja um að fá eignina fullfrágengna að innan og utan með grjófjafnaðari lóð.
Skipting eignar er eftirfarandi:
Forstofa, stofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og tvö svefnherbergi.
Gert er ráð fyrir tveimur svefnherbergjum, hjónaherbergi með fataherbergi.
Bílskúr er 24m2 að stærð, þar af er geymsla 3m2.
Heildarstærð eignar er 131,4.
Húsið er byggt úr timbri, þak er hefðbundið kraftsperruþak.
Að utan verður húsið klætt með liggjandi hvítri báruklæðningu en svartri klæðningu í innskotum.
Þakkantar klæddir með sléttu, svörtu áli með svörtum þakrennum og þak klætt með aluzink.
Búið verður að einangra húsið, gólfhiti verður ísteyptur í öllu húsinu og tengdur en kaupandi sér um uppsetningu stýringa.
Búið verður að koma rafmagni inn í húsið.
Loft íbúðar tilbúin til spörslunar.
Húsinu verður skilað með grófjafnaðri lóð.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.