Fasteignaleitin
Skráð 27. júní 2024

Langagerði 5

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
351 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
220.000.000 kr.
Fermetraverð
626.781 kr./m2
Fasteignamat
191.800.000 kr.
Brunabótamat
154.700.000 kr.
Mynd af Gunnar Bergmann Jónsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Löggiltur fasteignasali
6903408www.eignamidlun.isEignalisti
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2035839
Landnúmer
108486
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
í lagi
Raflagnir
Í lagi
Frárennslislagnir
í lagi
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur að framan og stórar svalir
Lóð
100
Upphitun
Sér
Inngangur
Sérinngangur
Glæsilegt einbýlishús á besta stað við Langagerði 5. Húsið stendur á 874 fm lóð sem búið er að taka mikið í gegn. Eignin er skráð 314,9 fm þar af bílskúr 32,5 fm. Nýttir fermetrar eru rúmlega 350 þar sem búið er að útbúa aðstöðu á neðri hæð sem er óskráð en í fullri nýtingu. Í eigninni eru 6 svefnherbergi, stórar stofur, borðstofa, fjögur baðherbergi, sjónvarpsrými, þvottahús og geymsla. Þá er auka íbúð á neðri hæðinni sem er í góðri útleigu, auðveldlega hægt að útbúa aðra leiguíbúð með sér inngangi á neðri hæðinni. Bílaplan er hellulagt með hitalögnum. Auk þess er búið að útbúa hellulagt bílastæði meðfram húsinu sem t.a.m. hentar vel fyrir kerru eða hjólhýsi. Virkilega vel skipulögð eign sem hefur verið vel viðhaldið. BÓKIÐ SKOÐUN.

Áhugasamir leiti nánari upplýsinga: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is

Efri hæð:

Anddyri: með stórum sérsmíðuðum skápum frá Sérverk sem ná til lofts. Flísar á gólfi og upphengdur skenkur sem er einnig sérsmíðaður frá Sérverk með fallegri steinplötu frá Rein. Gott rými.
Alrými og stofur: Komið inn í alrými frá anddyri. Hátt til lofts, með loftgluggum sem gefa rýminu fallega birtu. Stórar stofur og borðstofa með góðum gluggum og mjög fallegu útsýni. Parket á stofurými, flísar á forstofu og holi.
Baðherbergi: Flísalagt með upphengdu salerni, viðarinnréttingu og handklæðaofni. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott herbergi með stórum skápum, parket á gólfi og útgengi út á svalir. Minna herbergi sem notað er í dag sem skrifstofa.
Eldhús: Rúmgott eldhús með mjög góðu skápaplássi. Falleg hvít innrétting frá HTH og borðkrókur. Búr inn af eldhúsi. Útgengt út á pall fyrir framan hús frá eldhúsi.
Bílskúr: Mjög rúmgóður bílskúr (32,5 fm) með  innréttingu á heilum vegg. Vaskur í borði. Rafmagnsopnari.
Gengið niður á neðri hæðina úr miðrýminu. Teppalagður stigi, glerhandrið niður stiga.
Sjónvarpsrými: Mjög rúmgott rými þegar komið er niður stiga. Frá rýminu er gengið inn í þrjú svefnherbergi, þvottahús, geymslu og baðherbergi
Þrjú svefnherbergi: Þrjú rúmgóð og samliggjandi svefnherbergi. Parket á gólfum. Eitt herbergjanna er með sér inngang og mögulegt að útbúa sem aðra útleigu íbúð. Nýuppgert flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni, walk-in sturtu og handklæðaofni. Sér smíðaðir skápar frá Sérverk í herberginu.
Þvottahús: Virkilega rúmgott þvottahús með fínu borð plássi og hillum. Baðherbergi með sturtuaðstöðu og góð geymsla inn af þvottahúsi.
Útigeymsla: fín útigeymsla á neðri hæð við garðinn.
Auka íbúð: Sér inngangur vestan við húsið. Forstofa,baðherbergi með sturtuklefa, eldhús og opið rými með svefnkrók. Útgengi í garð. Auka íbúðin er í útleigu. Leigutekjur eru 230 þús á mánuði og er þriggja mánaða uppsagnarfrestur.
Almennt: Eignin hefur fengið virkilega gott viðhald og vandað til verka á öllum tímum. Nýtt baðherbergi á neðri hæðinni 2022, þá var einnig settur gólfhiti í það herbergi sem áður var stúdíóíbúð. Þakið og þakkantur endurnýjað 2020 og skipt um alla loftglugga. Árið 2020 lagnir myndaðar, lóð endurnýjuð, hellulagða stæðið vestan megin við húsið gert. Einungis tveir eigendur að eigninni frá byggingu hússins.

Frábær staðsetning í göngufæri við skóla og íþróttasvæði. Þá er stutt í alla þjónustu og verslanir í hverfinu.

Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/09/201361.800.000 kr.63.000.000 kr.314.9 m2200.063 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
36.1 m2
Fasteignanúmer
2035839
Byggingarefni
Steypa

Myndir (71)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tunguvegur 62
Skoða eignina Tunguvegur 62
Tunguvegur 62
108 Reykjavík
106.9 m2
Raðhús
413
747 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Gullteigur 4
3D Sýn
Skoða eignina Gullteigur 4
Gullteigur 4
105 Reykjavík
164.4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
514
875 þ.kr./m2
143.900.000 kr.
Skoða eignina Laugalækur 20
Skoða eignina Laugalækur 20
Laugalækur 20
105 Reykjavík
250.1 m2
Raðhús
835
Tilboð
Skoða eignina Ofanleiti svæði L-4
Ofanleiti svæði L-4
900 Vestmannaeyjar
335.9 m2
Einbýlishús
423
536 þ.kr./m2
180.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin