Fasteignaleitin
Skráð 19. mars 2026

Týsvellir 1

EinbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
232 m2
7 Herb.
Verð
136.900.000 kr.
Fermetraverð
590.086 kr./m2
Fasteignamat
127.850.000 kr.
Brunabótamat
131.700.000 kr.
Mynd af Svavar Friðriksson
Svavar Friðriksson
Löggiltur fasteignasali.
Fasteignanúmer
2228311
Landnúmer
176351
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð

Fasteignasalan Torg og Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, kynna með stolti: ***Fallegt, rúmgott og vel viðhaldið einbýlishús á góðum stað í Reykjanes***
Um er að ræða afar fallegt og rúmgott 232m2 einbýlishús með bílskúr á eftirsóttum stað í Keflavík.
Húsið skiptist í forstofu, fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús og bílskúr. Eignin einkennist af fallegri hönnun, sérhönnuðum innréttingum og góðri lofthæð sem gefur rýmistilfinningu.
Möguleiki á íbúðarskiptum.
Nánari lýsing:
Aðkoman er snyrtileg með stóru, upphituðu stimpluðu bílaplani.
Forstofa er flísalögð og með góðu skápaplássi. Þaðan er gengið inn í rúmgott hol með parketi á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með mikilli lofthæð og stórum gluggum sem hleypa inn góðri birtu. Þar er einnig arinn og sjónvarpsrými með útgengi út á verönd.
Borðstofa er í opnu rými og parketlögð, hentug fyrir stærri samverustundir.
Eldhúsið er flísalagt og með vandaðri, sérsmíðaðri innréttingu með miklu skápaplássi ásamt góðum tækjum. Þar er einnig notalegur borðkrókur.
Svefnherbergin eru fimm, öll með parketi og fataskápum.
Baðherbergi I er flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni, fallegri innréttingu, baðkari með sturtu og handklæðaofni.
Baðherbergi II er inn af hjónaherbergi og er einnig flísalagt. Þar er upphengt salerni, góð innrétting, sturta og handklæðaofn.
Þvottahúsið er flísalagt með rúmgóðri innréttingu og góðu skápaplássi. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og gengið þaðan inn í bílskúr.
Bílskúrinn er flísalagður með rafdrifinni hurð og geymslulofti. Þar eru einnig gluggar og útgönguhurð út á bílaplan.
Að utan er stór og afgirt verönd með fallegum viðarpalli og heitum potti.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS. 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (78)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hallveigartröð 5
Bílskúr
Hallveigartröð 5
320 Reykholt í Borgarfirði
195.2 m2
Einbýlishús
514
409 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb301
Bílastæði
Opið hús:19. mars kl 17:30-18:00
Vetrarbraut 2-4 íb301
210 Garðabær
118.5 m2
Fjölbýlishús
312
1096 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb120
Bílastæði
Opið hús:19. mars kl 17:30-18:00
Vetrarbraut 2-4 íb120
210 Garðabær
121.9 m2
Fjölbýlishús
312
943 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Freyjubrunnur 29
Bílastæði
Opið hús:19. mars kl 17:30-18:00
Skoða eignina Freyjubrunnur 29
Freyjubrunnur 29
113 Reykjavík
143.3 m2
Fjölbýlishús
413
771 þ.kr./m2
110.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin