Fasteignaleitin
Skráð 19. feb. 2026

Stigahlíð 42

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
209.9 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.000.000 kr.
Fermetraverð
757.504 kr./m2
Fasteignamat
128.450.000 kr.
Brunabótamat
97.550.000 kr.
Mynd af Björn Þorri Viktorsson
Björn Þorri Viktorsson
hrl. og lögg. fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2031481
Landnúmer
107273
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurn. að hluta
Raflagnir
Endurn. 2007
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Yfirbyggðar suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Einstaklega falleg, mikið endurnýjuð, björt og vel skipulögð 7 herbergja 209,9 fm. efri sérhæð í þríbýli, að meðtöldum 20,1 fm. bílskúr á þessum einstaka stað.  Sér stigahús og stigapallur, 5 herbergi stofa, borðstofa, hol, eldhús og tvö baðherbergi.  Stórar suðursvalir með svalalokun, þvottahús og góðar geymslur.  Bílastæði á lóð og góður garður.  Skipting eignarinnar er sem hér segir; íbúð á hæð 167,7 fm., bílskúr 20,1 fm., geymslur í kjallara 19,6 fm. og anddyri á 1. hæð 2,5 fm.

Nánari lýsing:  Komið er um sérinngang á 1. hæð.  Þar er flísalagt anddyri og nýtt teppi á stigahúsi á hæðina og stigapalli.  Stigapallur er rúmgóður og þar er fataskápur.  Af stigapalli er inngangur í svefnálmu hæðarinnar en einnig inngangur í rúmgott miðjuhol.  Á svefngangi, sem er parketlagður og með fataskáp, eru tvö baðherbergi og fjögur svefnherbergi.  Baðherbergin voru endurnýjuð 2018 á vandaðan hátt og þá var einnig skipt um innihurðir í svefnálmunni.  Hjónaherbergið er parketlagt og með fataskáp.  Baðherbergið við hlið þess (í enda gangsins) er flísalagt, með "walk in" sturtu, vegghengdu wc, innréttingu, glugga og handklæðaofni.  Við hlið hjónaherbergis, er stórt (2 skv. teikn) unglingaherbergi, parketlagt með fataskáp (ath. hurð til staðar og auðvelt að skipta upp á ný).  Annað rúmgott parketlagt herbergi með skáp og útgangi á svalir hæðarinnar.  Baðherbergi 2, er flísalagt, með baðkari, vegghengdu wc, innréttingu og handklæðaofni.  Gluggalaust, en með frásogi.  Miðjuhol hæðarinnar er parketlagt og með fataskáp.  Stofurnar eru stórar í vinkil, bjartar, með stórum gluggum, parketlagðar og með útgengi á 12 fm. flísalagðar suðursvalir, með svalalokun, lýsingu og rafmagnstenglum.  Eldhúsið er flísalagt, með hvítri innréttingu, borðkrók, span-helluborði, ofni og uppþvottavél.  Tengt fyrir tvöfaldan ísskáp.  Af holi er einnig parketlagt herbergi og flísalagt þvottahús með innréttingu, skolvaski og innisnúrum.  Í kjallara eru þrjár geymslur í séreign íbúðarinnar og sameiginleg snyrting.  Innangengt er í bílskúrinn úr kjallara, en hann er með vatni, hita og rafmagni.  Eldri flekahurð og gluggar.  Bílskúrinn er samliggjandi og opinn við bílskúr 1. hæðar.

Endurnýjun á liðnum árum skv. uppl. seljenda:
2007, nýtt eldhús og þvottahús á hæðinni.
2007, allt rafmagn dregið nýtt og ný tafla.
2018, baðherbergin bæði endurnýjuð og allar innihurðir í svefnálmu.
2020, sett ný svalalokun á svalirnar, þær flísalagðar og dregið rafmagn út.

Ath., hæðin er skráð "birt stærð séreignar" í gagnagrunni HMS 189,8 fm., en þar sem bílskúrar 1. og 2. hæðar liggja saman (ekki veggur á milli), telst hann sem "sameign sumra", en hlutfall eignarinnar í henni er 20,1 fm. = 209,9.  Þá teljast svalirnar ekki inni í fm. fjölda eignarinnar, þrátt fyrir að þær séu í dag lokaðar, en með þeim teldist eignin alls 221,9 fm. af lokuðu rými.

Allar nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lfs., bjorn@midborg.is, eða í síma 894-7070.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/01/200733.250.000 kr.39.800.000 kr.182.9 m2217.605 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
20.1 m2
Fasteignanúmer
2031481
Byggingarefni
Steypt

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyktarás 15
Skoða eignina Eyktarás 15
Eyktarás 15
110 Reykjavík
269.6 m2
Einbýlishús
716
649 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Búland 1
Bílskúr
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Búland 1
Búland 1
108 Reykjavík
224.7 m2
Raðhús
624
801 þ.kr./m2
180.000.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 25
Skoða eignina Borgartún 25
Borgartún 25
105 Reykjavík
345 m2
Atvinnuhúsn.
10
Tilboð
Skoða eignina Orkureitur D2-504 Grensásvegur 4
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
Orkureitur D2-504 Grensásvegur 4
108 Reykjavík
127.7 m2
Fjölbýlishús
322
1096 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin