Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega bjarta, fallega og mjög mikið endurnýjaða 3ja herbergja 110,0 fermetra íbúð á jarðhæð með sérinngangi og sameiginlegum í góðu steinsteyptu litlu fjölbýlishúsi við Laufásveg í Reykjavík.
Íbúðin var öll innréttuð á vandaðan og smekklegan máta árið 2017, gólfefni, innihurðir, eldhúsinnréttingar og tæki, baðherbergi, fataskápar, raflagnir og tafla, neysluvatnslagnir, ofnar og ofnalagnir. Loft voru tekin niður að hluta og sett í þau innfelld lýsing. Lofthæð í íbúðinni er um 2,75 metrar. Íbúðin er nýlega máluð hið innra og til stendur að skipta um borðplötu í eldhúsi.
Húsið var viðgert og málað að utan árið 2021. Þakjárn var yfirfarið og málað árið 2019. Klóaklagnir undir húsi og út í götu voru endurnýjaðar árið 2014.
Lýsing eignar:
Forstofa / gangur, parketlagður.
Barnaherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og hluti veggja, veggskápar, vaskskápar og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottaherbergi, innaf baðherbergi með flísalögðu gólfi og innréttingum.
Eldhús, mjög rúmgott, parketlagt og bjart með mjög fallegum hvítum innréttingum með korean á borðum og flísum á milli skápa. Innbyggð uppþvottavél í innréttingu og stór og góð borðaðstaða í eldhúsi.
Stofa, stór, parketlögð og björt með gluggum í tvær áttir.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með miklum fataskápum á tveimur veggjum.
Tvær sérgeymslur fylgja íbúðinni, báðar 5,8 fermetrar að stærð.
Íbúðin er með sérinngangi, en einnig er hægt að ganga inn í hana úr sameiginlegu stigahúsi hússins.
Húsið að utan var viðgert og málað árið 2021 og lítur vel út. Þakjárn var yfirfarið og málað árið 2019.
Staðsetning eignarinnar er mjög góð á rólegum stað í miðborginni þaðan sem stutt er í iðandi mannlíf borgarinnar, veitingahús, söfn og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is