Fasteignaleitin
Opið hús:06. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 2. júlí 2026

Byggakur 14

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
227.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
215.000.000 kr.
Fermetraverð
944.640 kr./m2
Brunabótamat
140.300.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
23068291
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

GUNNAR VALSSON OG LIND FASTEIGNASALA KYNNA:
Einstaklega vandað og vel skipulagt fjögurra svefnherbergja raðhús á vinsælum og eftirsóttum stað í Akrahverfi í Garðabæ.
Um er að ræða glæsilega og fjölskylduvæna eign þar sem vandað hefur verið til verka. Húsið er bjart, vel skipulagt og býður upp á rúmgóð alrými, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, sjónvarpsherbergi, skrifstofurými, bílskúr og fallegan garð sem snýr til suðausturs.


Sérsmíðaðar, hágæða HÄCKER-innréttingar frá Eirvík í eldhúsi og baðherbergjum.
SMEG eldhústæki og ísskápur í eldhúsi.
Þriggja sentímetra marmaraplötur frá S. Helgason á eldhúsi og baðherbergjum.
Innbyggð Vola- og Hansa-blöndunartæki á baðherbergjum.
Gegnheilt eikarparket frá Birgisson og flísar á blautrýmum.
Sérsmíðaðar, gereftislausar innihurðir frá JP innréttingum.
Sérsmíðað handrið í stiga úr byssustáli frá Suðulist.
Gólfhiti á báðum hæðum með þráðlausum stýringum frá Danfoss í hverju herbergi.
Innbyggð LED-lýsing.
Innangengt í rúmgóðan bílskúr með epoxy á gólfi.
Hitað bílaplan.
Lagnir fyrir heitan pott eru til staðar í garði.

Nánari lýsing
Neðri hæð
Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi. Á neðri hæð er einnig baðherbergi með sturtu og fallegri innréttingu.
Frá forstofu er innangengt í bílskúr þar sem epoxy er á gólfi. Í bílskúrnum er innrétting og gott skápapláss.
Eldhús, borðstofa og stofa mynda bjart og opið alrými. Eldhúsið er glæsilegt, með góðu skápaplássi, stórri vinnueyju, gaseldavél og vönduðum tækjum.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar með gólfsíðum gluggum og þaðan er útgengt í fallegan garð sem snýr til suðausturs. Í garðinum er gert ráð fyrir heitum potti og eru lagnir fyrir hann þegar til staðar.

Efri hæð
Teppalagður stigi með þakglugga leiðir upp á efri hæð hússins.
Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi. Þar af eru þrjú rúmgóð barnaherbergi, öll með fataskápum. Hjónaherbergið er rúmgott, með miklu skápaplássi og útgengi á stórar svalir sem snúa til norðvesturs.
Baðherbergið á efri hæð er vel útbúið með sturtu, baðkari og fallegri innréttingu. Þá er á hæðinni rúmgott sjónvarpsherbergi sem nýtist vel sem fjölskyldurými.
Þvottahúsið er vel skipulagt, með góðum innréttingum og flísum á gólfi. Einnig er stórt og opið skrifstofurými á hæðinni, sem er skráð sem geymsla á teikningum.

Samantekt
Hér er á ferðinni einstaklega vönduð og fjölskylduvæn eign á eftirsóttum stað í Garðabæ. Húsið er vel skipulagt, bjart og rúmgott, með fjórum svefnherbergjum, fallegum alrýmum, góðu geymsluplássi, bílskúr og suðausturgarði.
Ekkert hefur verið til sparað við val á innréttingum, gólfefnum, tækjum og frágangi. Skólar fyrir öll aldursstig eru í göngufæri og hverfið er sérlega vinsælt meðal fjölskyldufólks.
Húsið var sprunguviðgert og málað sumarið 2025.

Eign sem vert er að skoða.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR GUNNAR VALSSON LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 699-3702 / GUNNAR@FASTLIND.IS 


 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vetrarbraut 4 - íbúð 409
Bílastæði
Opið hús:06. júlí kl 17:00-17:30
Vetrarbraut 4 - íbúð 409
210 Garðabær
235.4 m2
Fjölbýlishús
423
1253 þ.kr./m2
294.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 1
Hraungata_1-17.jpg
Skoða eignina Hraungata 1
Hraungata 1
210 Garðabær
180.5 m2
Fjölbýlishús
423
717 þ.kr./m2
129.500.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 - íbúð 109
Bílastæði
Opið hús:06. júlí kl 17:00-17:30
Vetrarbraut 2 - íbúð 109
210 Garðabær
104.2 m2
Fjölbýlishús
413
958 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 - íbúð 212
Bílastæði
Opið hús:06. júlí kl 17:00-17:30
Vetrarbraut 2 - íbúð 212
210 Garðabær
119.5 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin