Fasteignaleitin
Skráð 29. ágúst 2026

Smárahvammur 9

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
424.4 m2
10 Herb.
5 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
208.100.000 kr.
Byggt 1984
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20790553
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Veglegt 424,4 fm einbýli hannað af þeim Ásmundi, Róberti og Kaldal árið 1982 á tveimur hæðum með tveimur aukaíbúðum við Smárahvamm 9, 220 Hafnarfirði.
Eignin skiptist í 238,3 fm neðri hæð, 143,9 fm efri hæð og 42,2 fm bílskúr, samtals 424,4 fm skv. HMS.

Nánari lýsing:

Aukaíbúð 1: Sérinngangur. Anddyri með fatahengi og flísum á gólfi. Rúmgóð stofa, eldhús með eldavél og útg. á verönd. Eitt rúmgott hjónaherbergi með skápum. Baðherbergi með sturtu og flísum á gólfi og veggjum uppað lofti allan hringin.

Aukaíbúð 2: Sérinngangur. Anddyri með fatahengi, lausum skáp og flísum á gólfi. Eldhús og borðstofa í rúmgóðu alrými, útg. frá eldhúsi á verönd. Upprunaleg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, ofn og helluborð m/viftu yfir. Tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum.
Baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og baðkari með sturtu yfir, flísar á gólfi og veggjum uppað lofti allan hringinn.

Aðal íbúð: Anddyri með skápum, gestasalerni innaf anddyri. Borðstofa með útg. á litlar svalir. Rúmgóð setustofa með arinn og útg. á stórar sólgóðar svalir og fallegu útsýni. Eldhús með góðu skápaplássi, ofni og helluborði, borðkrókur og fallegt útsýni. Þvottahús/búr innaf eldhúsi, bílskúr innaf þvottahúsi með tveimur bílskúrshurðum og auka lofthæð. Herbergisgangur, tvö svefnherbergi þar sem annað þeirra var notað sem sjónvarpsherbergi í fyrri tíð en hitt hjónaherbergi með skápum og útg. á sömu stóru svalir og setustofa. Baðherbergi með sturtu og baðkari, flísar á gólfi og veggjum uppað lofti allan hringinn. Stigi niður á neðri hæð, hol með aðgengi inní báðar aukaíbúðir en er ekki notað í dag. Gangur með þremur geymslum og endar í rúmgóðu hobbýherbergi með útg. á verönd, möguleiki á að gera aðra íbúð þar.

Eignin situr á 1246 fm lóð sem áður fyrr voru tvær einbýlishúsalóðir, sameinaðar í eina við endan á botnalangagötu. Húsið er í einstaklega fallegum stíl, lóð er ræktuð og útsýnið er gott.  Þakið var málað sumarið 2023.
Ljóst er að eign þessi bíður upp á marga skemmtilega möguleika, s.s. halda í núverandi skipulag eða breyta núverandi skipulagi í eitt stórt hús.
Sami eigandi hefur verið á húsinu frá upphafi.
ATH. teikningar á neðri hæð eru ekki í samræmi við núverandi skipulag.

Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (62)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Furuvellir 20
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:08. sept. kl 16:00-16:30
Skoða eignina Furuvellir 20
Furuvellir 20
221 Hafnarfjörður
187.3 m2
Einbýlishús
413
747 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Litlabæjarvör 4
Á einni hæð
Litlabæjarvör 4
225 Garðabær
213 m2
Einbýlishús
422
1023 þ.kr./m2
218.000.000 kr.
Skoða eignina Víðivangur 6
3D Sýn
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Víðivangur 6
Víðivangur 6
220 Hafnarfjörður
302.5 m2
Einbýlishús
834
661 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:02. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hringhamar 37
Hringhamar 37
221 Hafnarfjörður
95.9 m2
Fjölbýlishús
312
833 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin