101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Vel staðsett fjölskylduhús á einni hæð, með tvöföldum bílskúr, innst í botnlanga við Holtsgötu 47, Sandgerði, skólar, íþróttasvæði og bókasafn í göngufæri.
Skipulag eignar:
Eignin samanstendur af: Forstofu, gangi, stofu/borðstofu/sólskála, eldhúsi, þvottahús, fimm svefnherbergjum og baðherbergi. Útgengi er frá borðstofu/sólskála að palli.
Tvöfaldur 60 ferm. bílskúr er við húsið og geymsluskúr á palli.
Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð gólf og þvottahús á hægri hönd, hurð lokar forstofu af við alrými.
Komið er inn af forstofu inn á gang þaðan sem gengið er inn í önnur rými hússins.
Stofa/borðstofa/sólskáli er hluti af alrými, parketlagt gólf, stórir gluggar vísa í suður og vestur með útgangi að palli og að garði hússins.
Eldhús er við enda gangs til hægri, með útgengi út í garð, nýleg innrétting og tæki eru í eldhúsi, endurnýjað fyrir ca 4 árum. Spónlögð viðarinnrétting, efri skápar og neðri skápar og dökk borðplata. Ofn í vinnuhæð ásamt örbylgjuofni, helluborð og nettur borðkrókur..
Hjónaherbergi parketlagt og með opnum fataskáp.
Barnaherbergi eru fjögur inn á gangi á vinstri hönd þegar komið er inn úr forstofu, gólf parketlögð.
Baðherbergi flísalagt gólf, góður sturtuklefi. Hvítar baðinnréttingar, upphengt salerni
Þvottahús mjög rúmgott, þvottavél og þurrkari í vinnsluhæð og góð dökk innrétting. inngangur er í þvottahús frá forstofu.
Bílskúr skráður samkvæmt fasteignayfirliti 60 fm. Bílaplan er stórt og hellulagt
Garður er gróinn, snýr í suðvestur og er með timburpalli við sólskála
Köld útigeymsla er á suður palli.
Heildareignin er timburhús og bílskúr sem er komið á almennt viðhald fyrir utan að nýlegt parket er á gólfum nema á votrýmum, nýlegt eldhús þ.e. innrétting og tæki, nýir gluggar og ný inngöngudyr á suðurhlið eru í bílskúr.
Eigninni hefur verið breytt frá upphaflegri teikningu eða við austari enda er búið að bæta við tveimur svefnherbergjum og þegar eldhús var endurnýjað þá var það breikkað á kostnað búrs sem var þar innaf. Eins er geymsla ekki stúkuð af í bílskúr.
Geymsluloft er yfir húsinu.
Gott fjölskylduhús sem er frábærlega staðsett við skóla og íþróttasvæði bæjarins.
Allar upplýsingar veita: Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is og Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is
Bókið skoðun á kristin@101.is eða í síma 820-8101
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.