Fasteignaleitin
Skráð 20. okt. 2026

Þingholtsstræti 29

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
294.4 m2
6 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
185.000.000 kr.
Fermetraverð
628.397 kr./m2
Brunabótamat
118.550.000 kr.
Byggt 1899
Sérinng.
Fasteignanúmer
20067791
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is kynna í einkasölu:
Um er að ræða einbýlishús á þrem hæðum alls 294.4 fm að Þingholtsstræti 29 sem að hefur sögulegt gildi og er byggt 1899.
Eignin stendur á eignarlóð 397.6 fm á horni Þingholtsstrætis og Skálholtsstígs.
Áhugaverður fjárfestingarkostur fyrir áhugasama aðila um endurbætur á eldri húsum.

Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland Lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

Eignin er skráð samkvæmt fasteignaskrá:

Kjallari er 97 fm merktur 01-00-01, aðalhæð er 94.8 fm merkt 01-01-01, efri hæð 102.6 fm merkt 01-02-01 alls 294.4 fm.
Einnig er risloft yfir allri efri hæð sem að mætti nýta.

 
Eignin skiptist í:
Á fyrstu hæð er forstofuherbergi, gangur, þrjár stofur, eldhús, gestasalerni, ræstiherbergi, bíslag þaðan sem að eru tveir útgangar út í garð.
Voldugur tréstigi af gangi á fyrstu hæð uppá aðra hæð þar sem að komið er á gangrými, setustofa, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvotta/línherbergi og súðarherbergi eru innaf svefnherbergjum. Tréstigi er uppá risloft sem að er yfir allri efri hæðinni og er það óinnréttað og er þak ekki einangrað innanfrá. Úr eldhúsi á jarðhæð er stigi niður í kjallara sem að er mjög hrár og óinnréttaður og skiptist í fjögur geymslurými, kjallari er stúkaður af með tréveggjum, steypt gólf er í kjallara og þar er rafmagnstafla húseignar sem að er nokkuð nýleg.
Mikil lofthæð er á allri fyrstu hæðinni.
 
Nánari lýsing fyrsta / aðalhæð: Inngangur er í húsið á gaflinum sem að snýr að Skálholtsstíg og er þar komið inná gang, innaf gangi á vinstri hönd er forstofuherbergi með fatahengi og innaf því er gestasalerni. Til hægri af gangi er komið inní mjög rúmgóðar stofur sem að hægt er að loka á milli með rennihurðum og innaf innri stofu er svo borðstofa sem að líka er hægt að loka af með rennihurð. Innaf gangi strax til vinstri er hurð inní eldhús sem að er undir stiga efri hæðar.
Eldhús er með gamalli panel eldhúsinnréttingu, flísalagt gólf undir eldavél, bakatil við eldhús er bíslag með útgengi á tvo vegu út í garð og í bíslagi er ræstikompa.
 
Efri hæð: Voldugur tréstigi af gangi á fyrstu hæð uppá aðra hæð þar sem að komið er á gangrými og af gangi er gegnið í önnur rými hæðar. Tvö mjög rúmgóð svefnherbergi og eru súðageymslur innaf herbergjum sem að gætu nýst sem vinnuherbergi, gluggi er á súðageymslum. Snyrtilegt stofuherbergi er á efri hæð og er inngengt í stærra svefnherbergi úr stofuherbergi.
Við enda gangs á hæðinni er setustofa sem að væntanlega hefur verið notuð sem borðkrókur. Innst á gangi til norðurs er svo eldhús með gamalli panel eldhúsinnréttingu. Baðherbergi er innaf gangi við stiga enda þegar komið er uppá hæðina, sturtuklefi, salerni og vaskur á baðherbergi og er gluggi á baðherbergi. Þvottaherbergi og línherbergi er innaf baðherbergi. Fallegt útsýni er yfir Þingholtin af efri hæðinni.
 
Ris:Tréstigi er uppá risloft af efri hæð og er risloft yfir allri efri hæðinni, það óinnréttað og þak óeinangrað, gluggar eru á sitthvorum gafli í risi.
Kjallari:Kjallari er mjög hrár og óinnréttaður og skiptist í fjögur geymslurými og er kjallari stúkaður af með tréveggjum sem að auðvelt er að fjarlægja, steypt gólf er í kjallara og er hlerahurð á kjallararými sem að snýr út að Þingholtsstræti..
 
Gólfefni eignar: Gólffjalir á stærstum hluta húseignar, gólfdúkur á eldhúsi og baðherbergjum.

Þingholtsstræti 29 er hús sem hefur verið notað af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Húsið er norskt timburhús í sveitserstíl (eitt af fyrstu húsum sem voru flutt hingað tilhöggin frá Noregi og líkast til s.k. norskt „katalógshús“) sem var reist árið 1899 (hönnuður Johan Klev frá Mandal) og er nú friðað í A-flokki af menntamálaráðherra 9. desember 1988 samkvæmt 1. mgr. 26. gr. og 27. gr. þjóðminjalaga nr. 52/1969.


Saga hússins:
Í lok 19. aldar keyptu nafnarnir Jón Magnússon, landritari, og Jón Jensson, háyfirdómari (sem síðar varð tengdafaðir Sigurðar Nordals) sér lóðir hlið við hlið í Þingholtsstræti.
Á árunum 1898 og 1899 reistu þeir sér hús yfir fjölskyldur sínar, Þingholtsstræti númer 27 og 29. Þingholtsstræti 27 skemmdist í bruna árið 1975 og var flutt yfir götuna á lóð nr. 28 tveimur árum síðar. Húsið númer 29 stendur enn á sínum stað.
Í húsinu við Þingholtsstræti 29 bjó Jón Magnússon ásamt konu sinni, Þóru Jónsdóttur listakonu og kjördóttur þeirra til ársins 1912 þegar þau fluttu í veglegt hús að Hverfisgötu 21 sem Jón hafði látið reisa.
Síðar eignaðist Pálmi Pálsson, yfirkennari við Menntaskólann í Reykjavík húsið. Kona hans var Sigríður Björnsdóttir, þau áttu einn son, Pál Pálmason. Fjölskylda Pálma bjó í húsinu allt fram á níunda áratug 20. aldar.
Húsið kemur við sögu í skrifum Stephans G. Stephanssonar skálds sem kom þangað í Íslandsheimsókn sinni 1917 meðan Pálmi bjó þar. Einnig segir Halldór Laxness frá því í endurminningabókum sínum að hann hafi verið kallaður á fund Pálma í þetta hús en yfirkennaranum leist ekki á sérviskulegt málfar nemandans.
Menntamálaráðuneytið festi kaup á húsinu árið 1987 til að nota það sem aðsetur fyrir Stofnun Sigurðar Nordals. Stofnunin var þar frá því hún hóf starfsemi 1. janúar 1988 en hún varð síðar hluti af sameinaðri Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum árið 2006. 
Húsinu hefur verið viðhaldið eins og kostur er.
Árið áður en stofnunin hóf starfsemi sína, 1987, unnu Hörður Ágústsson, listmálari og Leifur Blumenstein, byggingafræðingur álitsgerð um húsið. Í henni er fróðleg samantekt um byggingarsögulegt samhengi hússins, í hvaða ástandi það var á þeim tíma og drög að verkáætlun.
Húsið er nú friðlýst, friðlýsingin nær til ytra- og innra byrðis hússins.
Húsinu var gefið nafnið Þingeyrar til að minnast þess að á miðöldum var Þingeyraklaustur eitt helsta menntasetrið í landinu eins og Sigurður Nordal benti rækilega á.

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Völuskarð 4
Heitur pottur
Skoða eignina Völuskarð 4
Völuskarð 4
221 Hafnarfjörður
296,8 m2
Einbýlishús
735
741 þ.kr./m2
219.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturgata 26
Skoða eignina Vesturgata 26
Vesturgata 26
101 Reykjavík
92,9 m2
Fjölbýlishús
322
860 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut 43
Bílskúr
Á einni hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Hraunbraut 43
Hraunbraut 43
805 Selfoss
200,4 m2
Einbýlishús
413
528 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Axlarás 10A
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Axlarás 10A
Axlarás 10A
221 Hafnarfjörður
160,6 m2
Raðhús
43
800 þ.kr./m2
128.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin