Opið hús:02. mars kl 17:00-17:30
Skráð 26. feb. 2026

Langholtsvegur 34

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
73.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
818.306 kr./m2
Fasteignamat
56.400.000 kr.
Brunabótamat
33.150.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1948
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2017952
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað 2018
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta 2018
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir
Þak
Endurnýjað 2018
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Langholtsvegur 34 Reykjavík - Afar glæsileg og sjarmerandi 3ja herb. íbúð með sérinngangi.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega, vel skipulagða og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð í lítið niðurgröfnum kjallara í vel viðhöldnu tvíbýli við Langholtsveg 34 í Reykjavík. Íbúðin er 73,2 fermetrar að stærð, rúmgóð með sérinngangi. 

Húsið lítur vel út að utan og með nýlegum gluggum/gleri. Þakið var endurnýjað á árunum 2017-2018 og grindverk á sama tíma. Fallega gróinn afgirtur garður með tyrfðum flötum sunnan og vestan megin á lóðinni og fallegum gróðri. Árið 2024 voru tröppur og aðgengi að íbúð endursteypt og húsið drenað vestan megin við hús (við bakgarð).

Baðherbergi var endurnýjað árið 2018 (innrétting, vaskur, spegill og blöndunartæki við vask endurnýjað á síðustu þremur árum) og var skipt um öll gólfefni íbúðar á sama tíma. Gólfhita var komið fyrir í forstofu, eldhúsi og baðherbergi. Skápar voru endurnýjaðir fyrir þremur árum síðan. Lagnir voru myndaðar árið 2018 og var frárennsli frá eldhúsi þá lagfært. Á sama tíma voru neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Þá hafa ofnar og rafmagnstafla verið endurnýjuð. Auk þess er nýlega búið að endurnýja borðplötu, vask, blöndunartæki og uppþvottavél í eldhúsi.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi, gólfhita og skápum sem ná upp í loft.
Hol: Með vinyl parketi á gólfi. Búið að koma fyrir góðri vinnuaðstöðu í holi og fallegu timburverki sem skilur vinnuaðstöðu frá gangi.
Stofa: Er rúmgóð með vinyl parketi á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs.
Eldhús: Með flísum á gólfi, gólfhita og fallegri eldhúsinnréttingu. Flísar á mili skápa, innb. uppþvottavél og keramik helluborð. Stál bakaraofn, vifta, lýsing undir skápum og gluggi til suðurs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með vinyl parketi á gólfi, skápum á heilan vegg og glugga til austurs.
Svefnherbergi: Með vinyl parketi á gólfi og glugga til suðurs.
Baðherbergi: Var endurnýjað árið 2018. Með flísum á gólfi og gólfhita. Flísalögð sturta og vönduð innbyggð Grohe blöndunartæki. Upphengt salerni, innrétting við vask og gluggi til vesturs.
Geymsla: Er inn af íbúð með hillum og þaðan er gengið inn í sameiginlegt rými þar sem kjallaraíbúð hefur fengið að vera með þvottavél. 

Um er að ræða virkilega fallega og sjarmerandi íbúð á frábærum og eftirsóttum stað við Langholtsveg í Laugardalnum þaðan sem stutt er í alla verslun, þjónustu og fallegar hjóla/gönguleiðir. Leikskóli, grunnskóli og menntaskóli í göngufjarlægð.

Nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson löggiltur fasteignasali, í síma 849-0672, tölvupóstur heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/08/202133.400.000 kr.43.000.000 kr.73.2 m2587.431 kr.
12/08/202033.250.000 kr.37.000.000 kr.73.2 m2505.464 kr.
08/12/201620.100.000 kr.30.500.000 kr.73.2 m2416.666 kr.
01/09/201416.550.000 kr.23.800.000 kr.73.2 m2325.136 kr.
23/09/201015.700.000 kr.18.367.000 kr.73.2 m2250.915 kr.
04/01/200816.800.000 kr.18.300.000 kr.73.2 m2250.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gnoðarvogur 16
Skoða eignina Gnoðarvogur 16
Gnoðarvogur 16
104 Reykjavík
73.7 m2
Fjölbýlishús
312
848 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Álfheimar 31
Opið hús:26. feb. kl 17:15-17:45
Skoða eignina Álfheimar 31
Álfheimar 31
104 Reykjavík
69.5 m2
Fjölbýlishús
211
891 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallavegur 14
Skoða eignina Hjallavegur 14
Hjallavegur 14
104 Reykjavík
55.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
211
1040 þ.kr./m2
57.400.000 kr.
Skoða eignina Njörvasund 8
Skoða eignina Njörvasund 8
Njörvasund 8
104 Reykjavík
61.4 m2
Fjölbýlishús
211
976 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin