Fasteignaleitin
Opið hús:19. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 15. okt. 2026

Freyjugata 28 1.hæð

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
135 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.500.000 kr.
Fermetraverð
1.033.333 kr./m2
Fasteignamat
105.500.000 kr.
Brunabótamat
71.350.000 kr.
Mynd af Jórunn Skúladóttir
Jórunn Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Byggt 1930
Jarðhæð af 4
Garður
Svalir
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2008947
Landnúmer
102629
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sjá upplýsingaskjal seljanda
Raflagnir
sjá upplýsingaskjal seljanda
Frárennslislagnir
Sjá upplýsingaskjal seljanda
Gluggar / Gler
Sjá upplýsingaskjal seljanda
Þak
Sjá upplýsingaskjal seljand
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir
Lóð
16,5
Upphitun
Hitaveita / ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Freyjugata 28 – 101 Reykjavík
Einstök eign á Skólavörðuholti – sígildur glæsileiki, sögulegur sjarmi og bílskúr

Háborg fasteignasala og Jórunn löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einstaklega fallega og sjarmerandi 106,4 fm íbúðarhæð ásamt 26,6 fm bílskúr, samtals 133 fm, í reisulegu steinsteyptu húsi frá árinu 1930 við Freyjugötu 28.

Eignin stendur á einum af fallegri stöðum Skólavörðuholts, gegnt höggmyndagarði Listasafns Einars Jónssonar og í næsta nágrenni við Hallgrímskirkju. Hér fer saman einstök staðsetning, rúmgóð og björt rými og heillandi byggingareinkenni frá fyrri tíð. Íbúðin hefur að stórum hluta varðveitt upprunalegan karakter sinn, meðal annars með fallegum loftlistum, skrautlegum gluggaumgjörðum, frönskum rennihurðum og upprunalegri eldhúsinnréttingu.Eign fyrir þá sem kunna að meta sígildan arkitektúr, sögu og sérstakan miðbæjarsjarma.

Nánari lýsing eignar
Gengið er inn í forstofu og þaðan í rúmgott hol sem tengir saman helstu vistarverur íbúðarinnar.

Stofur: Tvær glæsilegar, samliggjandi stofur með stórum og fallegum gluggum, skrautlegum gluggaumgjörðum og loftlistum. Á milli þeirra er frönsk rennihurð sem setur sterkan svip á rýmin og undirstrikar sígildan karakter íbúðarinnar. Þriðja stofan tengist stofurýmunum með opnum inngangi og hefur einnig aðgengi frá forstofu. Hún er í dag nýtt sem afmarkað herbergi.

Eldhús: Bjart eldhús með glugga sem snýr að Listasafni Einars Jónssonar. Þar er heillandi, upprunaleg eldhúsinnrétting sem varðveitir anda byggingartíma hússins.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi, þar af eitt með útgengi á svalir til austurs.
Baðherbergi og snyrting: Baðherbergi með glugga ásamt sérstakri snyrtingu.
Bílskúr: Með eigninni fylgir 26,6 fm bílskúr og bílastæði fyrir framan hann sem tilheyrir íbúðinni sem séreign.
Sameign: Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi ásamt geymslu.

Húsið – saga og sérstaða
Freyjugata 28 er reisulegt steinsteypt hús, byggt árið 1930, á Skólavörðuholti í hjarta Reykjavíkur.
Húsið ber skýr einkenni þeirrar vönduðu steinsteyptu íbúðabyggðar sem mótaði svip Skólavörðuholts á fyrri hluta 20. aldar. Það er hluti af þeirri sögulegu götumynd sem gefur þessu hverfi einstakan karakter.
Húsið hefur í gegnum tíðina hýst sjálfstæðar íbúðareiningar í kjallara, á hæðum og í risi. Við viðhald og endurbætur hefur verið lögð áhersla á að varðveita upprunalegt yfirbragð og byggingareinkenni þess.
Staðsetning
Staðsetningin er án efa einn af helstu kostum eignarinnar.
Húsið stendur gegnt höggmyndagarði Listasafns Einars Jónssonar, með opnu og fallegu umhverfi til norðurs, og í næsta nágrenni við Hallgrímskirkju.
Hér er búið í sögulegu og grónu íbúðarhverfi í hjarta borgarinnar, þar sem stutt er í fjölbreytta menningu, veitingastaði, verslanir og mannlíf miðborgarinnar.
Viðhald og framkvæmdir á húsinu
Unnið hefur verið að viðhaldi og endurbótum á ytra byrði hússins með áherslu á að halda upprunalegum svip þess.
Múrverk hefur verið yfirfarið og endurnýjað eftir þörfum og húsið nýlega málað.
Þak hefur verið endurnýjað og klætt norskum steinskífum.
Gluggar hafa verið yfirfarnir og málaðir.
Svölum hefur verið bætt við austurhlið hússins og sérsmíðuð svalahurð sett í upprunalegum stíl hússins.
Árið 2020 var veitt leyfi til endurnýjunar og breytinga á þakklæðningu hússins.
Garður:
Fallegur garður með torfi og trjágróðri við lóðarmörk. Einnig er garðurinn afmarkaður með glæsilegri steypti girðingu sem rammar vel heildarmyndina að þessu sögulega húsi. Garðurinn í óskiptri sameign allra í húsinu.
Húsfélag
Í húsinu er virkt húsfélag og er mánaðarlegur húsfélagskostnaður um kr. 14.142 kr.
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum eru hvorki yfirstandandi né fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum húsfélagsins.
Athugið: Unnið er að uppfærslu eignaskiptasamnings og mun uppfærður samningur liggja fyrir eigi síðar en við afsal eignarinnar.

Nánari upplýsingar og skoðun veitir Jórunn lögg.fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is og Hrefna Harðardóttir, nemi í löggildingu - s:690-0751 og hrefna@haborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1930
28.6 m2
Fasteignanúmer
2008947
Byggingarefni
steypt
Lóðarmat
16.200.000 kr.
Fasteignamat samtals
16.200.000 kr.
Brunabótamat
13.250.000 kr.

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sunnukriki 3
Hleðslustöð
Opið hús:20. okt. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Sunnukriki 3
Sunnukriki 3
270 Mosfellsbær
126,7 m2
Fjölbýlishús
312
667 þ.kr./m2
84.500.000 kr.
Skoða eignina Hraunteigur 30
3D Sýn
Kjallaraíbúð
Skoða eignina Hraunteigur 30
Hraunteigur 30
105 Reykjavík
79,8 m2
Fjölbýlishús
312
901 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Nesvegur 61
Skoða eignina Nesvegur 61
Nesvegur 61
107 Reykjavík
73,7 m2
Fjölbýlishús
312
948 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 50
Efsta hæð
Opið hús:21. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Kleppsvegur 50
Kleppsvegur 50
105 Reykjavík
102,4 m2
Fjölbýlishús
513
683 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin