Fasteignaleitin
Opið hús:04. maí kl 17:45-18:15
Skráð 29. apríl 2026

Ferjuvað 15

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
125.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
741.421 kr./m2
Fasteignamat
87.600.000 kr.
Brunabótamat
74.980.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2310409
Landnúmer
206483
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
10
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Stór pallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Rúmgóð fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi og stórum palli að Ferjuvaði 15 í Norðlingaholti. Rúmgott sérmerkt stæði er í lokaðri bílageymslu. Eignin er samtals skráð 125,3 fermetrar og skiptist í forstofu/anddyri, hol, hjónaherbergi, 2-3 barnaherbergi, baðherbergi, eldhús og samliggjandi stofur. Frá borðstofu er útgengt á rúmgóðan pall. Þvottaherbergi er innan íbúðar. Í kjallara sameignar er sérgeymsla ásamt hjóla- og vagnageymslu. Bæði eldhús og baðherbergi eru nýlega uppgerð. Auðvelt er að setja upp léttann vegg í aðra stofuna og hagnýta rýmið sem fjórða svefnherbergið, eins og teikningar gera ráð fyrir. 
Þessi eign er á vinsælum stað í nálægð við fallegar gönguleiðir og í göngufæri við verslanir, leik- og grunnskóla. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Komið er inn í flísalagða lokaða forstofu með nýlegum háum fjórföldum fataskápum.
Hol/gangur: Parketlagt hol og gangur sem tengir saman rými íbúðarinnar.
Eldhús: Endurnýjað eldhús með vandaðri eldhúsinnréttingu og rúmgóðri eyju. Eldhúsið er búið tengi fyrir uppþvottavél, Samsung helluborði og bakaraofni í vinnuhæð. Vaskur með útdraganlegum barka og bustaðri krómáferð. Hvítar flísar milli efri og neðri skápa. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Stofurnar eru rúmgóðar í opnu og björtu alrými með stórum gluggum og parketi á gólfi. Frá borðstofu er útgengt á rúmgóðan pall með skjólvegg. Granít er á hluta gluggakistna (sólbekkir) úr granít.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með loftháum sjöföldum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi eru tvö rúmgóð svefnherbergi með loftháum fataskápum og parketi á gólfum. Á teikningum var gert ráð fyrir fjórða svefnherberginu þar sem stofan er núna. Auðvelt er að setja upp léttann vegg og hagnýta rýmið sem fjórða svefnherbergið. 
Baðherbergi: Nýlega uppgert. Flísalagt í hólf og gólf. Búið fallegri hvítri innréttingu með handlaug og neðri skúffum. Skápur, upphengt salerni, handklæðaofn og stórt baðkar með hertu gleri og sturtuaðstöðu. Gluggi með opnanlegu fagi og hitaþráður í gólfi baðherbergis.
Þvottaherbergi: Innan íbúðar er þvottaherbergi er með ljósum flísum á gólfi. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymslur: Íbúðinni fylgir sérgeymsla í sameign. Til viðbótar er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Garður: Stór sameiginlegur garður/lóð. Góð aðkoma er að húsinu og virðast næg bílastæði vera við húsið.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu.

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign (Áætlað en taka þarf mið á breytingum á gjaldskrá Sýslumanns):
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ath. gjaldskrá er birt með fyrirvara. Aðeins er um að ræða áætlaða gjaldskrá sýslumanns.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/01/202256.900.000 kr.71.500.000 kr.125.3 m2570.630 kr.
14/04/202151.800.000 kr.66.500.000 kr.125.3 m2530.726 kr.
12/04/201222.550.000 kr.28.500.000 kr.125.3 m2227.454 kr.
24/08/20111.980.000 kr.369.000.000 kr.2762.4 m2133.579 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2011
Fasteignanúmer
2310409
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
0
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.530.000 kr.

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dalbraut 2C - Íb. 101
Dalbraut 2C - Íb. 101
780 Höfn í Hornafirði
44.8 m2
Fjölbýlishús
212
854 þ.kr./m2
38.250.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær með leiguherbergi 90
Opið hús:03. maí kl 14:00-14:30
Hraunbær með leiguherbergi 90
110 Reykjavík
104.2 m2
Fjölbýlishús
514
734 þ.kr./m2
76.500.000 kr.
Skoða eignina Brimklöpp 7
Bílskúr
Skoða eignina Brimklöpp 7
Brimklöpp 7
250 Garður
191.7 m2
Einbýlishús
43
456 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Brimklöpp 5
Bílskúr
Skoða eignina Brimklöpp 5
Brimklöpp 5
250 Garður
191.7 m2
Einbýlishús
412
456 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin