Fasteignaleitin
Skráð 24. nóv. 2026

Ólafsgeisli 71

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
198.8 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
186.900.000 kr.
Fermetraverð
940.141 kr./m2
Fasteignamat
146.250.000 kr.
Brunabótamat
98.500.000 kr.
Mynd af Helga Pálsdóttir
Helga Pálsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2001
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2251635
Landnúmer
186352
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upphaflegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
þrennar svalir
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Nýtt á skrá! Ólafsgeisli 71 Reykjavík. Einstök staðsetning með glæsilegu útsýni. Eignin er einungis sýnd í einkaskoðunum. 

Lind fasteignasala og Helga Pálsdóttir lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt og vel staðsett einbýlishús á tveimur hæðum ásamt  bílskúr á einstökum útsýnisstað við Ólafsgeisla 71 í Reykjavík. Eignin er alls 198,8 fermetrar að stærð og þar af 33,2 fermetra bílskúr. Húsið er umvafið fallegri náttúru þar sem útsýni er yfir m.a golfvöll GR og höfuðborgina. Garðurinn er einstaklega fallegur og gróinn með miklum veröndum, heitum potti ásamt útisturtu sem var hannaður af Stanislas Bohic.
 Sérsmíðaðar innréttingar og að hluta til rennihurðar sem að nýta plássið einstaklega vel. Stórt upphitað garðhýsi með rafmagni sem er mjög góð geymsla. Útilýsingin er virkilega vel hönnuð og gefur glæsilegt yfirbragð.

Eignin er virkilega falleg og sjarmerandi. Mikil lofthæð er í stofu og eldhúsi og stórir gólfsíðir gluggar til suðurs þar sem glæsileg náttúran mætir manni í alrými eignarinnar.  Útgengi er úr stofu út á tvennar svalir.  Eignin var öll hönnuð af Rut Káradóttur innanhússarkitekt þar sem hugað var að öllum smáatriðum. Stórt eldhús með miklu skápaplássi og steini á borðum. Extra háar innihurðir og vönduð gólfefni. Gólfhiti er í allri eigninni.


Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpsstofu fjögur svefnherbergi ,tvö baðherbergi, ( annað inn af hjónaherbergi), stofu/borðstofu með fallegum arni, sjónvarpsherbergi, eldhúsi, gestasnyrtingu, þvottaherbergi , geymslu og bílskúr. Steypt stimpluð innkerysla með snjóbræðslu.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Ólafsgeisla í Reykjavík þaðan sem stutt er í skóla og leikskóla, golfvöll GR í Grafarholti auk verslunar og þjónustu. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í glæsilegri náttúrunni allt í kring.


Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi 
Eldhús með flísum á gólfi og sérsmíðuðum eldhúsinnréttingum með miklu skápaplássi. Stór eldhúseyja, granít á borðum , tvöfaldur kæliskápur með frysti, tveir nýlegir ofnar, innbyggð uppþvottavél og gashelluborð.Stór vínkælir.  Gluggar til suðurs/vesturs og aukin lofthæð.. Glæsileg náttúran allt í kring með stórkostlegu útsýni.
Stofa /borðstofa með gegnheilu parketi á gólfi og aukinni lofthæð. Glæsilegir gólfsíðir gluggar til suðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útsýni frá stofu er afar glæsilegt út í fallega náttúruna, yfir golfvöll GR og víðar.
Hjónaherbergi með gegnheilu parketi á gólfi, fataherbergi er innaf hjónaherbergi ásamt baðherbergi með flísum á gólfi og veggju, innréttingu og walk-in sturtu, opnanlegur gluggi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja. Baðkar með sturtu tækjum. Innrétting við vask með steini á borðum og speglaskáp fyrir ofan. Upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi  með gegnheilt parket á gólfi og fataskáp

Neðri hæð 
Sjónvarpsstofa með gegnheilu parketi á gólfi og gluggum á tvo vegu, og útgengi út i garð.
Gestasnyrting með flísum á gólfi og veggjum, upphengt salerni, falleg innrétting með granít borpplötu og stórum spegli fyrir ofan. 
Tvö svefnherbergi með gegnheiluparketi á gólfi.
Þvottaherbergi með  flísum á gólfi, skápum, tenglum fyrir þvottavél/þurrkara og vaski. 
Geymsla undir stiga sem er mjög rúmgóð.
Bílskúrinn er 33,2 fermetrar að stærð og mjög snyrtilegur. Innangengt beint í bílskúr frá þvottahúsi, flísar á gólfi og rafmagns bílskúrshurðaopnari. Upphitaður með gluggum og gönguhurðum. 

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2001
33.2 m2
Fasteignanúmer
2251635
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.350.000 kr.

Myndir (77)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Berjarimi 53
Efsta hæð
Skoða eignina Berjarimi 53
Berjarimi 53
112 Reykjavík
208,2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
614
710 þ.kr./m2
147.900.000 kr.
Skoða eignina Brautarás 10
Heitur pottur
Opið hús:26. nóv. kl 17:00-17:30
Brautarás10_adalmynd.jpg
Skoða eignina Brautarás 10
Brautarás 10
110 Reykjavík
217,1 m2
Raðhús
735
732 þ.kr./m2
159.000.000 kr.
Skoða eignina Bugðutangi 2
Heitur pottur
Opið hús:24. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Bugðutangi 2
Bugðutangi 2
270 Mosfellsbær
319,6 m2
Einbýlishús
726
532 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Miðgarður 1
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Miðgarður 1
Miðgarður 1
230 Reykjanesbær
193,7 m2
Einbýlishús
615
542 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin