Fasteignaleitin
Skráð 22. maí 2026

Háahlíð 16

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
530 m2
10 Herb.
6 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
243.650.000 kr.
Brunabótamat
154.400.000 kr.
Mynd af Atli S. Sigvarðsson
Atli S. Sigvarðsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2032112
Landnúmer
107348
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaaveita
Inngangur
Margir inngangar
Gallar
Skráð stærð hússins skv. HMS er 397,2 fm en ekki 530. 
Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Einbýlishús í algjörum sérflokki á einstökum útsýnisstað í Reykjavík. Húsið er á þremur hæðum. Á miðhæð eru glæsileg alrými með fallegum stofum, borðstofu og eldhúsrými, gestasnyrting, forstofa og tvöfaldur bílskúr. Á efri hæð er einstök hjónasvíta, svefnherbergi, opið sjónvarpshol og þvottahús. Á neðri hæð eru 2-3 svefnherbergi, baðherbergi, tvær geymslur, þvottahús, fullbúin 2-3ja herbergja auka íbúð og einstakt spa með sundlaug og rækt. Innra skipulag hússins býður uppá mikla möguleika varðandi nýtingu og skipulag eftir því sem kaupanda hentar. Stærð hússins er samtals um 530 fm, skráðir 379,2 skv. HMS. Húsið var stækkað árið 1990 og endurinnréttað á vandaðan máta fyrir um 17 árum, allar innréttingar sérsmíðaðar, vönduð gólfefni, falleg lýsing ofl. Koparþak er á húsinu. Lóðin er falleg og í góðri rækt, góðar verandir, bílapan er upphitað, rúmgott og frágengið.
Sjá myndband af eigninni hér.

Nánari lýsing: 
Miðhæð: 

Flísalagt alrými með góðum skápum. Þrjár samliggjandi parketlagðar stofur með einstöku útsýni. Glæsilegt eldhús með hvítri innréttingu, Miele tækjum og stein á borðum, eldhúsið er opið við setustofu og borðstofu, parket á gólfi. Útgengt er um rennihurð út á verönd / lóð. Gestasnyrting er flísalögð og falleg. Bílskúr tvöfaldur og bjartur með hurðaopnara.

Efri hæð:
Fallegur parketlagður stigi er á milli hæða. Komið er upp í opið, bjart og fallegt alrými sem nýtist vel sem fjölskyldurými. Hjónasvíta er parketlögð og með góðum skápum og einstöku útsýni og útgengi á svalir. Inn af herberginu er mjög stórt og fallegt baðherbergi með stórri innréttingu, baðkari og sturtu. á hæðinni er einnig fínt herbergi og þvottahús með góðri innréttingu. Á teikningu telur hæðin fjögur svefnherbergi.

Neðri hæð:
Góður stigi er á milli hæða. Gangur er parketlagður, að honum liggja 2-3 svefnherbergi, baðherbergi, geymsla, þvottahús. Spa er í stóru og fallegu flísalögðu rými með sundlaug sem er nýlega yfirfarin, setustofu, líkamsrækt og baðherbergi. Sér inngangur er einnig í rýmið. Auka íbúð er snyrtileg með sér inngangi og telur opið rými með eldhúsi, 1-2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Í dag er opið af gangi yfir í íbúðina.

Efnisval: Innréttingar eru sérsmíðaðar, lýsing er vönduð og falleg. Gólfefni eru: niðurlímt fiskibeinaparket í flestum rýmum og votrými flísalögð. Rafdrifnar gardínur í sumum rýmum.
Húsið er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í leik-, grunn-, og framhaldsskóla, verslanir og aðra þjónustu.

Óskað er eftir tilboðum.

Þetta er einstakt hús fyrir vandláta. 
Allar upplýsingar veita:  Atli S. Sigvarðsson lögg. fasteignasali, í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is
Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 8449591 eða thorir@betristofan.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/05/2021133.900.000 kr.275.000.000 kr.372.9 m2737.463 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (68)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 11 íb 103
Vorbraut 11 íb 103
210 Garðabær
124.2 m2
Fjölbýlishús
413
957 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 11 íb 101
Vorbraut 11 íb 101
210 Garðabær
123.6 m2
Fjölbýlishús
413
930 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7
Bílastæði
Skoða eignina Hraungata 7
Hraungata 7
210 Garðabær
116.6 m2
Fjölbýlishús
32
1054 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7
Bílastæði
Skoða eignina Hraungata 7
Hraungata 7
210 Garðabær
116.8 m2
Fjölbýlishús
312
1027 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin