Fasteignaleitin
Skráð 23. sept. 2026

Nýlendugata 7

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
188.1 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
163.000.000 kr.
Fermetraverð
866.560 kr./m2
Fasteignamat
66.150.000 kr.
Brunabótamat
97.700.000 kr.
Mynd af Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
www.101.isEignalisti
Byggt 1922
Garður
Svalir
Pallur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2000545
Landnúmer
100209
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já suður
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Tveir inngangar
101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Mjög vel staðsett einbýli í miðbæ Reykjavíkur með mikla möguleika.
Eignin er skráð á þremur fastanúmerum og skiptist í kjallara (sem er lítið niðurgrafinn) hæð og ris. Í dag er opið á milli hæðar og risíbúðar og nýtt sem ein íbúð í dag.
Staðsetning á húsi er í sjarmerandi porti (Norðurstígsreitur) og hefur port nýlega verið hellulagt og fegrað.
Hús er í göngufæri að Reykjavíkurhöfn ásamt veitingastöðum, verslunum, Grandanum og Hörpu.
Aðkoma á bíl að húsi er frá Norðurstíg og í gegnum port. Aðkoma gangandi/hjólandi frá Ægisgötu. 


Lóð er að hluta girt af með viðargirðingu og er hellulögð og malarlögð norðanmegin, vestan megin við hús er lóð hellulögð.
Suðurpallur og afgirt sunnanmegin með nýlega steyptum vegg á milli húsa.


Inngangur að hæð og risi er norðanmegin við húsið.
Kjallari er í dag aðskilin frá miðhæð og risi og er með sérinngangi vestan megin við húsið.
Sér bílastæði fylgir eigninni.


Hæð og ris samantekt:
Gengið er upp flísalagðar tröppur að aðalinngangi hæðar og risíbúðar.
Hæð og ris samanstendur af:
Neðri hæð: Forstofa, gestasalerni, eldhús, stofa og svefnherbergi.
Ris, pallur við stiga, opið rými stofa, svefnherbergi, svefnherbergi/skrifstofa og fataherbergi. Baðherbergi með útgengi að svölum.
Upprunaleg falleg viðargólf eru á miðhæð og í risi.


Neðri hæð: 0101 Fnr. 200-0545
Eldhús
með hvítri innréttingu, efri skápum og neðri skápum og skúffum. Flísalagt er á milli efri og neðri skápa og lýsing undir efri skápum. Ofn, háfur og pláss fyrir uppþvottavél í innréttingu. Rúmgott pláss er fyrir frístandandi ísskáp.
Stofa er norðanmegin með útsýni að garði og nærumhverfi.
Svefnherbergi er á hægri hönd frá stofu með glugga sem snýr í suður.
Gestasalerni: Flísalagt gólf, handlaug og efri skápur og tveir rúmgóðir djúpir baðskápar. Tenging er fyrir þvottavél og þurrkara.

Ris: 0201 Fnr. 200-0546
Gengið er upp fallegan viðarstiga upp í ris. Gluggar efri og neðri við uppgang til vesturs sem gefa góða birtu í rýmið.
Komið er inn í opið rými stofu og svefnherbergis. Fataherbergi er inn af svefnherbergi.
Herbergi á vinstri hönd með útsýni til norðurs, í dag nýtt sem skrifstofa.
Baðherbergi flísalagt gólf og með útgengi að suðursvölum. Baðkar/sturta,handlaug, spegill og lýsing fyrir ofan ,handklæðaofn baðskápar annar opin sitthvorum megin við handlaug. Suðursvalir, flísalagt gólf á svölum og útsýni að nærumhverfi.
Risloft með aðgengi frá fellistiga liggur yfir hluta risíbúðar. 

Kjallaraíbúð (lítið niðurgrafinn). 0001 Fnr. 200-0544
Komið er að inngangi íbúðar vestan megin við húseign.
Forastofa með fatahengi.
Baðherbergi undir stiga er inn af forstofu, flísalögð sturta, handlaug og salerni. 
Herbergi innangengt frá forstofu. Gluggi í herbergi snýr í suður að garði.
Eldhús og stofa er í opnu rými, útsýni frá gluggum í eldhúsi/stofu er að garði.
Edhúsinnrétting, efri skápar, neðri skápur og hillur, eldavél, háfur og lítil uppþvottavél fylgir.
Svefnherbergi innangengt frá stofu, er bjart og gluggi snýr til suðurs að garði.
Gólfefni íbúðar er parketdúkur nema á baði en þar eru flísar. 
Gluggar, ofnar og flestar lagnir hafa verið endurnýjaðar í kjallara.
Íbúð í kjallara er í útleigu.

Þvottahús/geymsla er í sameiginlegu rými fastanúmera hússins, innangengt í það rými vestan megin við hús. 

2026 Handrið máluð á svölum og tröppum við aðalinngang.
2026 Þak og gluggar á miðhæð og í risi yfirfarnir að hluta.
2022 Á miðhæð ofnar í stofu og í svefnherbergi endurnýjaðir.
2020 Reykskynjarar, slökkvitæki, eldvarnarteppi og keðjustigi fyrir húsið endurnýjað.
2018 Tvöföld drenlögn og brunnur endurnýjað við norðurgafl hússins.
2016 Drenlagt í kringum húsið.
2011 Múrviðgerðir, háþrýstiþvottur, málun steinveggja, glugga og þaks.(oxyðryðvarnarmenja borið á riðfleti).
2004 Allt rafmagn endurnýjað á miðhæð og í risi.


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1922
57.1 m2
Fasteignanúmer
2000546
Númer hæðar
02
Númer eignar
01
Húsmat
53.510.000 kr.
Lóðarmat
8.240.000 kr.
Fasteignamat samtals
61.750.000 kr.
Brunabótamat
29.050.000 kr.
Byggt 1922
65.5 m2
Fasteignanúmer
2000544
Númer hæðar
00
Númer eignar
01
Húsmat
51.520.000 kr.
Lóðarmat
8.830.000 kr.
Fasteignamat samtals
60.350.000 kr.
Brunabótamat
34.350.000 kr.

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brimdalur 8
Heitur pottur
Skoða eignina Brimdalur 8
Brimdalur 8
260 Reykjanesbær
185 m2
Raðhús
524
648 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Grenimelur 47
Bílskúr
Opið hús:30. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Grenimelur 47
Grenimelur 47
107 Reykjavík
171.3 m2
Hæð
514
922 þ.kr./m2
157.900.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 50A
Skoða eignina Skipholt 50A
Skipholt 50A
105 Reykjavík
175.6 m2
Fjölbýlishús
424
740 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnubraut 14
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Sunnubraut 14
Sunnubraut 14
230 Reykjanesbær
197.8 m2
Einbýlishús
827
581 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin