Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/bjarni@remax.is) kynnir bjart og vel skipulagt 258,2fm einbýlishús á einni hæð með tvöföldum 60,6fm bílskúr í Reykjahverfi í Mosfellsbæ. 1.000fm eignarlóð. Gólfhiti er í öllu húsinu. Loftskiptikerfi er í öllu íbúðarrýminu. Stórt steypt bílastæði fyrir framan hús og steyptar gönguleiðir með hliðum hússsins. Bílastæði og inngangur eru með snjóbræðslu. Fyrir aftan húsið er stór timburverönd sem snýr í suðvesturátt. Á veröndinni er vandað flísalagt garðhús með gólfhita, rennandi vatni, rafmagni og glugga. Lagnir fyrir heitan pott eru undir timburverönd.
Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, tvær stofur, eldhús, forstofa, tvö baðherbergi, þvottahús og geymsla ásamt 60,6fm tvöföldum bílskúr sem er inn í heildar fermetratölu hússins.
- Vandað hús byggt árið 2022
- 4 rúmgóð svefnherbergi.
- 2 baðherbergi
- Gólfhiti og loftskiptikerfi
- 60fm tvöfaldur bílskúr
Nánari lýsing:
Anddyrið er rúmgott með tveggja metra háum fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhúsið er opið inn í stofu, bjart alrými með góðri lofthæð, innfelld lýsing. Eldhús innrétting er frá GKS, tveir ofnar í vinnuhæð, vaskur undirlímdur, uppþvottavél og gert ráð fyrir tvöföldum amerískum ísskáp.
Stofan er björt og opin með mörgum gluggum, sjónvarpshol er inn af stofunni, parket á gólfum, útgengt út á verönd til suðvesturs.
Hjónaherbergi með tveggja metra háum fataskápum á heilum vegg, parket á gólfi.
Barnaherbergin eru þrjú, 9, 10,1 & 14,2 fm, tvö með lausum fataskápum, öll með parket á gólfi.
Baðherbergin eru tvö, flísalögð í hólf og gólf, hvítar sprautulakkaðar innréttingar, upphengd klósett, opnar sturtur, gluggar fyrir loftun, útgengt til suðurs úr öðru þeirra.
Þvottahúsið er með miklu skápaplássi, innrétting undir þvottavél og þurrkara, útgengt til suðurs.
Bílskúrinn er tvöfaldur, innangengt, tvær bílskúrshurðar, epoxy á gólfi, gert er ráð fyrir hleðslu fyrir rafmagnsbíla í töflu.
Loft eru niðurtekin nema í stofu og bílskúr. Dúkur frá Parka í öllum loftum í íbúðinni og steinull fyrir ofan til að eyða bergmáli. Hljóðvist er góð í húsinu. Gólfhiti er í öllu húsinu. Loftskiptikerfi er í öllu íbúðarrýminu. Góður niðursteyptur timbur skjólveggur milli húsa.
Allar nánari upplýsingar veitir: Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662-6163 eða bjarni@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. 1.Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá 69.900kr.