Fasteignasalan TORG kynnir eignina Árakur 9, 210 Garðabær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 229-7111 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Árakur 9 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 229-7111, birt stærð 248.9 fm.
Eignin telur samkvæmt teikningu á neðri hæð: Bílskúr, forstofu, stóra geymslu, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, á efri hæð: þrjú mjög stór svefnherbergi eitt með fataherbergi inn af, sjónvarpsstofu, baðherbergi og þvottahús. Á efri hæð eru tvennar rúmgóðar svalir og á jarðhæð útgengi á stóra af girta timburverönd.
Vandað og einstaklega vel skipulagt fjölskylduhús á eftirsóttum stað.
Upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir, lgf. í síma 822-2225 eða thora@fstorg.is Sækja söluyfirlit hérNánari lýsing; Neðri hæð, forstofa með góðum fataskápum og flísum á gólfi.
Stór geymsla / herbergi með flísum á gólfi.
Baðherbergi er inn af forstofu, flísalagt í hólf og gólf, vönduð HTH innrétting, handklæðaofn og sturtuklefi, hiti í gólfi.
Bílskúr með Epoxy á gólfi, rafmagnshurðaropnara, innréttingu með vaski og tengingum fyrir þvottavél. Þvottaaðstaða fyrir bíl. Innangengt er í bílskúr úr forstofu.
Stofa og borðstofa eru mjög rúmgóðar og tengjast eldhúsi í opnu rými með parketi á gólfi, frá stofu er útgengi á stóra af girta timburverönd.
Eldhús er með vandaðri HTH innréttingu, mikið skápapláss og vönduð AEG tæki, parket á gólfi.
Steyptur stigi er milli hæða er parketlagður og með vönduðu sérsmíðuðu handriði.
Efri hæð: Hjónaherbergi er mjög rúmgott með vel innréttuðu fataherbergi inn af, parket á gólfi og útgengi á stórar svalir til norðurs.
Tvö mjög stór svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Sjónvarpsstofa sem hægt er að loka og nýta sem
fjórða svefnherbergið á hæðinni útgengi á stórar suður svalir.
Baðherbergi er mjög stórt og rúmgott, vönduð HTH innrétting með tveimur vöskum, handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu, hiti í gólfi.
Þvottahús með góðri innréttingu og skolvaski, Epoxy efni er á gólfi og hiti í gólfi.
Húsið lítur vel út að utan og er klætt að hluta með flísum og álbáruklæðningu.
Lóð og aðkoma að húsinu er öll frágengin, tvö góð bílastæði eru fyrir framan bílskúr með snjóbræðslukerfi . Stutt er í fallega gróið sameiginlegt leiksvæði og sparkvöll.
Einstaklega vandað og vel skipulagt fjölskylduhús þar sem Hofstaðaskóli, Garðaskóli og FG eru allir í göngu færi og stutt í verslun og þjónustu.Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á thora@fstorg.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.