Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna glæsilega og mikið endurnýjað útsýnisíbúð á 5. og efstu hæð í lyftuhúsi við Mýrarveg 111 ásamt stæði í lokuðum bílakjallara.Eignin er skráð 96,2 fm. skv. Fasteignskrá HMS, þar af er geymsla í sameign 4,9 fm. og afar snyrtileg og sameign. Húsið er ætlað íbúum 55 ára og eldri samkvæmt þinglýstri kvöð.
Íbúðin var nánast endurgerð árið 2020 m.a. allar innréttingar, innihurðir, gólfefni, gluggaáfellur og ofnar endurnýjað auk þess sem tvöföld svalalokun með einangrunargleri var sett upp.
Nánari lýsing;Komið er inn í opna forstofu með góðum fataskápum.
Opið alrými rúmar nú gott og opið eldhús með vandaðri HTH innréttingu með ljósri Quartz-stein bekkplötu og baki frá S.Helgasyni, vönduðum AEG eldhústækjum sem telja innbyggðan ísskáp, uppþvottavél, tvo ofna, annar hefðbundinn og hinn sambyggðan örbylgju- og blástursofn og niðurfellt span helluborð.
Stofan er rúmgóð og björt og fellur vel með eldhúsi- og borðstofurými og rúmgóðri setustofu með gluggum á 2 vegu, bæði til suðurs með útsýni upp á Súlur og Hlíðarhjall og gólfsíðum gluggum til norðurs með óhindruðu útsýni út fjörðinn og yfir á Kaldbak.
Gengið er út á yfirbyggðar svalir með vandaðri svalalokun með tvöföldu einangrunar gleri, auðvelt er að opna vel og njóta sólar allan ársins hring.
Herbergin eru tvö, rúmgott hjónaherbergi með fataskápum meðfram heilum vegg og alveg upp í loft, annað aðeins minna sem notað hefur verið sem setustofa.
Baðherbergið er rúmgott með raf opnanlegum glugga, þar er stór "walk-in" sturtuklefi, upphengt salerni og góð innrétting með miklu skápa- og skúffuplássi, quartz-steinplata og undirfelldur vaskur, handklæðaofn og hiti í gólfi.
Gluggaáfellur áfellur voru endurnýjaðar, nýjar eru úr quartz-steini samsvarandi og í eldhúsi og á baðherbergi.
Þvottahús innan íbúðarinnar er vel innréttað með aðstöðu fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð, innrétting með vaski og góðu skápaplássi en hugsað hefur verið fyrir góðu aðgengi að þrifatækjum og hirzlu plássi fyrir lín og hreinlætisefni.
Íbúðin er afar vel um gengin og auðveld í umgengni, engir þröskuldar eða aðrar hindranir, hurðir eru flestar að lágmarki 90 cm. breiðar.
Stæði í lokaðri bílageymslu þar sem mögulegt er að þvo bílinn innandyra fylgir eigninni.
Á geymslugangi í kjallara er geymslan, hún er 4,9 fm. með hillum á 2 veggjum.
Vel er hugsað um viðhald og umgengni til fyrirmyndar, ný lyfta var sett inn (árið 2025) er rúmgóð og hljóðlát.
Einstaklega vel staðsett eign í göngufjarlægð frá verslunarkjarna með apóteki, dagvöruverslun, veitingastað og blómabúð.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.