Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali og Trausti Fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og fallega 106,8 fm tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með afgirtum sérafnotareit og stæði í bílageymslu í snyrtilegu lyftuhúsi við 17. Júnítorg 3 í Garðabæ. Út af stofu er bjartur sólskáli og sólpallur. Birta stærð eignar er 106,8 fm samkvæmt HMS, þar af er 7,9 fm geymsla í kjallara. Um er að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign sem vert er að skoða. Íbúðin er ætluð fyrir 50 ára og eldri.
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni, handlaug.
Eldhús og borðstofa: Opið og bjart rými. Parket á gólfi, eikarinnrétting með dökkri borðplötu og góðu skápaplássi, tveir opnanlegir gluggar..
Stofa: Parket á gólfi, útgengi á afgirtan sérafnotareit sem er að hluta til lokaður með svalalokun.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott, parket á gólfi.
Fataherbergi: Inn af svefnherbergi. Flísar á gólfi, gott skápapláss.
Baðherbergi: Inn af fataherbergi. Flísar á gólfi og veggjum, innrétting með handlaug, sturta með glerhurð, upphengt salerni, handklæðaofn.
Þvottahús: Inn af fataherbergi. Flísar á gólfi. Þottahús er einnig aðgengilegt frá eldhúsi.
Sérgeymsla (7,9 fm) í sameign. Málað gólf, hillur.
Sérmerkt stæði í lokuðum bílakjallara.
Eldhús og borðstofa eru í opnu og björtu rými sem skapar góða heild. Frá stofu er útgengt á afgirtan sérafnotareit, sem er að hluta til lokaður með svalalokun og nýtist því vel allan ársins hring.
Svefnherbergið er mjög rúmgott með fataherbergi og sérbaðherbergi inn af. Auk þess er gestasnyrting í íbúðinni og þvottahús innan íbúðar, sem ekki er algengt í íbúð af þessari stærð.
Húsið var byggt árið 2006 af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars og er búið vönduðum innréttingum frá Brúnás.
Hér er um að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign í hjarta Sjálandshverfisins, þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu. Jónshús er handan götunnar, þar sem Félag eldri borgara í Garðabæ hefur haldið úti öflugu félagsstarfi um árabil. Íþróttamiðstöðin og sundlaugin í Ásgarði eru í göngufæri, sem og veitingastaðurinn Sjáland. Einnig eru verslunarkjarnarnir Litlatún og Garðatorg skammt frá, þar sem finna má m.a. matvöruverslanir, veitingastaði, heilsugæslu og apótek. Í nágrenninu eru fallegar gönguleiðir um Sjálandið og nærliggjandi svæði.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.