Fasteignaleitin
Skráð 20. nóv. 2024

Sambyggð 16 TIL LEIGU íbúð 0107

FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
73.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
41.250.000 kr.
Brunabótamat
43.250.000 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2263465
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
07
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
sólpallur
Lóð
12,97
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir TIL LEIGU:  3ja herbergja, glæsilega íbúð á jarðhæð að Sambyggð 16, Þorlákshöfn ásamt sér útigeymslu og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Íbúðin er laus til afhendingar 1.apríl 2026.
Fjárhæð leigu er kr. 250.000,- á mánuði fyrir utan rafmagn.
Trygging skilyrði.

*  Hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com*

Eignin telur:


*  Rúmgott anddyri með flísum á gólfi og stórum fataskáp. 
*  2 mjög rúmgóð svefnherbergi með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi. 
*  Eldhús og stofa eru í einu opnu rými með harðparketi á gólfi. Utangengt er á sér sérafnotaflöt/sólpall sem snýr í há-suður
*  Bjarta og fallega stofu.  Stórir gluggar snúa í hásuður og hleypa fallegri birtu inn í rýmið.
*  Fallegt eldhús með fallegri innréttingu.  Innfelld uppþvottavél og ísskápur fylgja.
*  Glæsilegt baðherbergi með hvítri innréttingu, sturtu úr glerþili og flísum á gólfi og veggjum. 
*  Tengill fyrir þvottavél og þurrkara er í forstofuskáp.  Tenglar eru líka á baðherbergi. 
*  Sér útigeymsla fylgir íbúðinni sem og sameiginleg vagna- og hjólageymsla.  

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina:
Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Super 1 pizza.
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) 
Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is **
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/01/202537.300.000 kr.42.000.000 kr.73.3 m2572.987 kr.
22/06/202017.950.000 kr.24.500.000 kr.73.3 m2334.242 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Suðurlands ehf.
www.eignin.is

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Geislaskarð 2
3D Sýn
Skoða eignina Geislaskarð 2
Geislaskarð 2
221 Hafnarfjörður
108 m2
Fjölbýlishús
413
727 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin