Til leigu vel staðsett 82,6 fm. verslunar- og þjónustuhúsnæði við Bergstaðastræti í 101 Reykjavík. Laust sept. 2026 eða fyrr.
Um er að ræða húsnæði á horni Bergstaðastrætis og Hallveigarstígs. Verslunarhæðin er 61,5 fm. og í kjallara er 21,1 fm. geymsla. Húsnæðið gæti hentað undir ýmsa starfsemi. Stórir gluggar snúa út að götu á tvo vegu en inngangur er á horni hússins. Parket er á gólfi á verslunarhæð en flísar á geymslu.
Undanfarin á hefur verið rekið kaffihús í húsnæðinu.
Húsaleiga er án vsk.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Axel Ólafsson, löggiltan fasteignasala í síma 661-2507, axel@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.