Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir fjögurra herbergja útsýnisíbúð á 6.hæð í álklæddu lyftuhúsi við Asparfell 10 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 97.3fm samkv. Fasteignaskrá Íslands. Myndavélakerfi í sameign og bílastæðum. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og geymslu.
- Stór framkvæmd á húsinu að utan 2022-2024 (Asparfell 2-12 - framkvæmd upp á ca 260 milljónir)
- Ný lyfta í húsinu
- Nýtt teppi á sameign
- Afhending við kaupsamning
- Hússjóður stendur vel
- Á bílastæðalóð eru nokkur tengi fyrir rafbílahleðslur og stendur til að fjölga staurumNánari lýsing:Anddyri með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús með eldri viðarinnréttingu, flísar á milli skápa, vifta, rúmgóður borðkrókur, t.f.uppþvottavél, opið inni stofu/borðstofu.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi, útgengt út á rúmgóðar suðvestur svalir með fallegu útsýni á Bláfjöll, Heiðmörk ofl.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu.
Svefnálma með 3 svefnherbergjum.Svefnherbergi 1 er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 er lítið með parket á gólfi.
Þvottaherbergi á hæðinni með sameiginlegum vélum fyrir þrjár íbúðir.
Sérgeymsla í sameign í kjallara. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.
Göngufæri er í skóla, leikskóla og íþróttir. Verslanir og ýmis þjónust í göngufæri og stutt í útivistarsvæði.
Eitt húsfélag er fyrir Asparfell 2-12, hússjóður stendur vel og er í virkum rekstri.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 59.900.