Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Grænatún 20

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
164.3 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
912.355 kr./m2
Brunabótamat
103.300.000 kr.
Byggt 2020
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
25104851
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali (s: 694 4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Um er að ræða nýlegt parhús ásamt innbyggðum bílskúr á tveimur hæðum við Grænatún 20A í Kópavoginum. Birt stærð skv. HMS: neðri hæðin er 76,4 fm, efri hæðin er 63,4 fm og bílskúrinn 24,5 fm eða samtals: 164,3 fm. Mjög gott skipulag - aukin lofthæð - gólfhiti - tvö baðherbergi - yfirbyggð verönd. 

Nánari lýsing eignar neðri hæðar: Komið er inn í mjög rúmgóða forstofu, stór fataskápur. Frá forstofu tekur við parketlagður gangur. Á neðri hæðinni er snyrting með upphengdu salerni, útgengt út á lóð. Innaf gangi er þvottahús með innréttingu með miklu skápaplássi og hillum og innaf þvottahúsinu er flísalagður bílskúr sem er að hluta til nýttur undir herbergi, sjálfvirkur hurðaopnari. Sjónvarpsherbergi með útgangi út á verönd. Mjög fallegt eldhús með glæsilegri innréttingu frá Fríform sem nær alveg upp í loft, mjög stór eyja úr kvartstein. Parketlögð borðstofa. Frá þessu rými er gengið út á yfirbyggða verönd sem er að sögn seljanda um 9 fm og í því rými er gólfhiti og þaðan er unnt að ganga út á verönd og þaðan út í bakgarð.    

Nánari lýsing efri hæðar: Teppalagður stigi upp á efri hæðina og þar er komið inn á parketlagðan gang. Mjög rúmgóð þrjú svefnherbergi og er gengið út á svalir frá tveimur herbergjanna. Á svölunum sem snúa til suður er heitur pottur. Flísalagt stórt baðherbergi með marmara flísum á veggjum, neðri skápur, Walk-in sturta, upphengt salerni og gluggi. Útgengt frá baðherbergi. Gólfefni: parket og flísar að mestu á gólfum fyrir utan stiga á milli hæða en þar eru teppi.  

Arkitekt hússins er Einar V. Tryggvason arkitekt. 

Húsið er vel staðsett í vinsælu hverfi á grónum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, verslanir ásamt fallegu útivistasvæði í Fossvogsdalnum.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kópavogsbrún 1
Skoða eignina Kópavogsbrún 1
Kópavogsbrún 1
200 Kópavogur
130.1 m2
Fjölbýlishús
413
922 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Grandahvarf 1.B
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Grandahvarf 1.B
Grandahvarf 1.B
203 Kópavogur
164.2 m2
Fjölbýlishús
412
847 þ.kr./m2
139.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45B
Skoða eignina Hjallabraut 45B
Hjallabraut 45B
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
157.5 m2
Raðhús
423
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin