Fasteignaleitin
Skráð 21. jan. 2026

Grensásvegur 1A íb511

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
88.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
936.723 kr./m2
Fasteignamat
71.250.000 kr.
Brunabótamat
55.850.000 kr.
Mynd af Jórunn Skúladóttir
Jórunn Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2522204
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
7
Númer íbúðar
11
Vatnslagnir
nýlegt
Raflagnir
nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
6,4
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Háborg fasteignasala ehf, Jórunn lögg.fasteignasali, Kristín Rós lögg. fasteignasali og Hrefna Harðardóttir, sölumaður kynna Grensásveg 1A, nýbygging í lyftuhúsi með bílakjallara. Glæsilega þriggja herbergja útsýnis íbúð á 5. hæð nr 11, í 108 Reykjavík.
Íbúðin er innréttuð með fallegum innréttingum í eldhúsi frá Parka með innbyggðum tæki, uppþvottavél og ísskáp með frysti. Á baði er einnig fallega innréttuð snyrtiaðstaða frá Parka. Íbúðin er með svölum út úr stofu/alrými. Ahendist við kaupsamning.
Bílakjallari á þremur hæðum, næg bílastæði. 
 

Birt stærð eignar er 88,5 fm samkvæmt HMS, þar af er 8,5 fm geymsla. Ath: kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á. Afhending við kaupsamning

Nýr valkostur í fjármögnun fasteignaBRÚ 20%. Kaupendur geta nýtt sér nýjan sjóð sem styður þá með því að fjárfesta með þeim allt að 20% -25% af kaupverði.  

Deilibílar.
 bæði sendibílar og fólksbílar, í boði fyrir íbúa og starfsfólk. Deilibílar eru hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Einnig eru hrað-hleðslustöðvar í bílakjallara.

Helstu kostir lúxus íbúðar eru:
  • Gólfhiti (hitastýring í íbúðunum),
  • Gólfsíðir gluggar í íbúðinni
  • Innréttingar með dökkum eikar lituðum forstofuskápum
  • Eldhúsinnréttingin er með dökk eikar lituð með hvítum skápum
  • Inngangshurð yfirfelld 260 cm hæð, innihurðir allt að 260 cm
  • Stærstur hluti innveggja Hemga léttsteypusteinum
  • Íbúðin skilast með gólfefnum, parketi á gólfum Aroma D3882 10mm/1380/193
  • Baðgólf flísalögð með dökkum Amani Matt flísum 60x120cm
  • Innfeld lýsing/ljós í loftum í stofum, eldhúsi, böðum og forstofu
  • Innfelld blöndunartæki á baði og innfeld lýsing bak við spegil og í lofti
  • Neysluvatnið með forhitara frágengið og tengt blöndunartækjum
  • Staðsetning frábær rétt við Laugardalinn
PANTIÐ SKOÐUN, erum til húsa að Grensásvegi 1. Sýnum með stuttum fyrirvara.

Nánar um íbúðina: þegar komið er inn í íbúðina er góður forstofuskápur. Baðherbergið er í holi við hjónaherbergið, með innbyggðum blöndunartækjum sturta og handlaug með skúffum undir og spegill fyrir ofan. Úr forstofu er komið inn í hol en þar blasir við glæsilegt alrými eldhús með eyju sem hægt er að sitja við og glæsilegar rúmgóðar bjartar stofur með útgengi á svalir er snúa að inngarði. Sér þvottahús innaf eldhúsi íbúðar með góðri vinnuaðstöðu. Hjónasvíta með gólfsíðum gluggum og fataherbergi. Einnig er eitt barnaherbergi með gólfsíðum gluggum og fataskápum, ásamt vinnukrók ( skrifstofa). Eigninni fylgir geymsla í bílakjallara 8,5 fm. Aðgengi að bílakjallara á þremur hæðum, næg bílastæði.  

G1Húsið Grensásvegur 1: er nýbygging og samanstendur af fimm stigahúsum rúmlega 180 íbúðir, ásamt verslunarhúsnæði á 1.hæð. Bílakjallari á þremurhæðum sem nýtist öllum íbúðum ef vill, gegn vægu gjaldi. Kostnaður á hverja klukkustund virka daga er kr 250- frá kl 8:00-18:00, á virkum dögum er kr 150-. frá kl 18:00-8:00. Helgar er kr 120- á klukkustund. Sjá má á www.parka.is nánari upplýsingar um áskriftir. Einnig er aðgengi að rafmagnshleðslu stöðvum í bílakjallara.

Húsfélag: Í húsinu er starfrækt húsfélag, það er rekstrarfélag sem sér um utanumhaldið. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags. Mánaðarlegur kostnaður ca. 25 þúsund.

Um er að ræða glæsilega íbúð á 5. hæð með svölum sem snúa inn í inngarðinn með útsýni. Gott birtuflæði, gólfhiti, aukin lofthæð, loftgæði góð, innbyggð lýsing og afhendist fullbúin með gólfefnum. Einstök staðsetning miðsvæðis þar sem stutt er í alla þjónustu og menningu.

Lóðin: falleg hönnun á lóðinni þar sem fallegur garður og gott aðgengi fyrir alla er til að njóta saman. Snjóbræðsla undir helstu göngustígum. 
Staðsetning: Frábær staðsetnin rétt við Laugardalinn og einstök tenging við Skeifuna. Gott aðgengi af samgöngum í nokkra metra fjarlægð. Öll þjónusta og verslun í göngufæri.

Nánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is, Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is og Hrefna Harðardóttir, sölumaður í síma 690-0751 eða á hrefna@haborg.is 
Athugið að myndir í auglýsingum eru settar fram til viðmiðunar. Á þeim kunna að koma fyrir einstök atriði, búnaður eða frágangur sem falla ekki undir loka­útgáfu eða skilalýsingu fasteignarinnar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
665 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin