Kasa fasteignir 461-2010.
Fornagil 5 - Glæsileg, björt og vel skipulögð 4 herbergja 161,5 fm parhúsaíbúð á tveimur hæðum með innbyggðum 27,4 fm bílskúr samtals 188,9 fm.
Eignin er öll afar vönduð með innréttingum og hurðum úr hnotu, gler handriðum í stiga, knx rafkerfi og góðri verönd með garðhúsi og heitum potti.
*** Bókið einkaskoðun í síma 461-2010 eða á kasa@kasafasteignir.is ***
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Neðri hæð: Forstofa, gangur, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi, geymsla/skrifstofa og bílskúr.
Efri hæð: Eldhús, stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Forstofa er rúmgóð og þar er hátt til lofts. Flísar eru á gólfi og stór fataskápur. Stigi milli hæða er flísalagður með gler handriðum og af stigapalli er hurð til suðurs út á steypta verönd með heitum potti og garðhúsi.
Eldhús, sérsmíðuð innrétting út hnotu og með mjög góðu skápaplássi. Eldhúsið er afar rúmgott með miklu skápa og skúffuplássi. Við eldhúsið er eyja með eldavél og skúffum. Hægt er að sitja við eyjuna.
Stofa og eldhús eru saman opnu rými með stórum gluggum til austurs. Ljósar flísar eru á gólfum og loft er tekið upp og með innfelldri lýsingu.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð og eru þau bæði með flísum á gólfum og hluta af veggjum. Á efri hæð er góð innrétting með borðvaski, baðkari og upphengdu salerni. Á neðri hæð er skúffu innrétting með borðvaski, innangeng sturta með glervegg og upphengt salerni. Á báðum baðherbergjum eru innmúruð vola tæki.
Þvottahús er við endann á gangi á efrihæð, það er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu með bekk og stálvask, pláss er fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Þar er einnig hurð út á baklóð þar sem eru þvotta snúrur.
Skrifstofa/Geymsla er á neðrihæð, þar er sérsmíðuð innrétting með miklu skápaplássi og skrifborði. Flísar á gólfi.
Bílskúr er skráður 27,4 fm að stærð og þar eru flísar á gólfi. Innst er mikið skápapláss. Rafdrifin hurð er á bílskúr.
Verönd er mjög rúmgóð og er með steyptu gólfi. Gengið er út á veröndina af stigapalli eða úr þvottahúsi. Á Veröndinni er heitur pottur, grillhús, garðskáli og þvottasnúrur. Mikill gróður er í kringum veröndina sem mynda gott skjól.
Annað
- Quartz borðplötur eru í eldhúsi og baðherbergjum.
- Allir hvítir vegghengdir skápar fylgja ekki með við sölu, þar með talið efriskápar í eldhúsi.
- Gólfhiti er í öllum rýmum.
- Innfelld lýsing er í þakskyggni fyrir framan forstofu og bílskúr.
- Bílaplan er bæði steypt og hellulagt og með hitalögnum undir hluta, ótengdar.
- Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar
- KNX Rafkerfi.
- Búið er að taka inn ljósleiðara
- Varmaskiptir.
- Eignin er í einkasölu
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.