Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 5 herbergja sumarhús að Stömpum 29 í Kjós í Hvalfirði. Um eignarlóð er að ræða og hitaveita komin í húsið. Húsið er á þremur hæðum og stendur mólendi nálægt bjargi við sjávarsíðuna. Einstaklega sjarmerandi hús, staðsetningin er einstök og ægifagurt útsýni er yfir Hvalfjörðinn og að Skarðsheiðinni. Neðsta hæðin er steypt og telur hluti hennar ekki í heildarfermetrum eignarinnar. Eignin er með rúmlega 160 m2 gólfflöt. Eignarlóð sem telur 2.601 m2. Akstur úr borginni tekur rúman hálftíma. Sjón er sögu ríkari.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, tómstundarými og geymsla. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 130,6 m2.*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA
**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!
Smelltu hér og þú færð söluyfirlit straxNánari lýsing rishæðar:Eikarparket er á hæðinni og kvistir. Timburstigi er milli hæða. Hitaveituofnar.
Stofurými/Setustofa er í suðurenda húss og gluggi vísar þangað út. Möguleiki er að gera þarna fleiri herbergi.
Herbergi I er inn af setustofunni. Einstaklega rúmgott og út frá því er gengið út á svalir sem vísa út að sjó til norðurs.
Nánari lýsing miðhæðar:Gólfhiti er á allri hæðinni. Eikarparket og flísar.
Forstofa er með dökkum gólfflísum. Glerhurð er úr forstofu inn í alrými.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósdrapplituðum flísum á veggjum og dökk gráum á gólfi. Hornbaðkar, upphengt salerni og hvítur skápur undir handlaug.
Herbergi I er inn af forstofuholi. Gluggi snýr að inngangi inn í hús til austurs. Parket á gólfi.
Herbergi II er inn af holi á milli hæða. Glugg vísar til vesturs að Akrafjalli. Parket á gólfi.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi. Stór eyja sem hægt er að sitja við tengir rýmin saman. Ægifagurt útsýni að m.a. Snæfellsjökli. Dökkar gólfflísar eru á rýminu.
Eldhús er með innréttingu á tveimur veggjum. Á milli efri og neðri skápa eru hvítar veggflísar. Stæði fyrir uppþvottavél. Bakaraofn, helluborð og vifta.
Svalir eru út frá eldhúsi og ná þær svalir fyrir hornið á húsinu að framanverðu. Afgirtar timbursvalir með m.a. útsýni að Akrafjalli.
Nánari lýsing neðstu hæðar:Gólfhiti er á allri hæðinni. Dökkar gólfflísar. Lofthæð er 217 cm. og skör neðar þar sem gengið er út er lofthæðin 230 cm.
Setustofa er inn af stiga þegar komið er niður. Möguleiki er að gera þar herbergi enda opnanlegt fag. Á teikningu er þetta rými ekki skráð (óuppfyllt rými).
Baðherbergi er með þreplausri sturtu, upphengdu salerni og vaski. Dökkar gólfflísar og ljósdrapplitaðar upp hluta veggja.
Þvottahús/geymsla er með stálborði og skolvaski. Nægt pláss fyrir þvottavél, þurrkara og frystiskáp. Afmarkaður svartur skápur er utan um allar pípulagnir fyrir gólfhitann.
Tómstundarými er hálfu þrepi neðar og þar er hægt að ganga út á steypta verönd. Blöndunartæki á vegg, en þar var áður gert ráð fyrir að koma fyrir vaski.
Steypt verönd nær fyrir austurhornið á húsinu sem og vesturhornið þar sem timburverönd tekur við. Steypt var 2012.
Geymsla er einnig úti undir hluta af timburverönd miðhæðar.
Lóðin er með malarvegi að húsi og góðu bílastæði. Lóðin er mólendi með berjalyngi og trjágróðri. Margir sælureitir eru við húsveggi, að framan við inngang þar sem morgunsólin kemur, sunnan við húsvegg er viðarverönd og tröppur eru þaðan niður á pottasvæðið.
Pottasvæðið er vestan við hús. Þar er timburverönd með útisturtuklefa og heitum- og köldum potti. Sturta og kaldur pottur 2025 og heitur pottur 2016.
Ath. Hitaveitan kemur 2017 í húsið. Ljósleiðari er kominn að húsi. Lóðin er úr landi Hálsi í Kjós og kallast Raðahverfi. Eigendur leigja lóðina við hliðina. Rotþró er hreinsuð á 3ja ára fresti, verður næst vor 2028. Byggingarmagn á lóð er 160 m2. 3ja fasa rafmang er komið að húsinu en ekki tengt.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-