*LAUS STRAX*
*AVAILABLE IMMEDIATELY*
Til leigu góð 4ra herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi. Eignin, sem er samtals 96 fm., er með þremur svefnherbergjum, anddyri/holi, eldhús, stofu, svefnherbergisgangi og baðherbergi. Sérgeymsla er í kjallara. Rúmgóðar vestursvalir. Stór sameiginleg lóð. Örstutt er í leikskóla og grunnskóla og í göngufæri við framhaldsskóla, verslanir, sundlaug, bókasafn, heilsugæslu, Klambratún o.fl. Innbyggður ísskápur/frystir og nýleg uppþvottavél fylgja íbúðinni. Laus strax. Leiga kr. 410.000 á mánuði + rafmagn. Leiga hækkar samkvæmt vísitölu neysluverðs. Farið er fram á tryggingu vegna leigu, að jafngildi þriggja mánaða leigu, kr. 1.230.000, í formi peninga, bankaábyrgðar eða ábyrgðar tryggingafélags (leiguskjol.is).
For rent 96 sqm. appartment on 2nd floor, included storage in basement, in a well located house. Three bedrooms. Spacious west-facing balcony. Large communal garden. Very close to kindergarten and elementary school and within walking distance to high school, shops, swimming pool, library, health care, Klambratún, etc. Built-in fridge/freezer and new dishwasher included with the apartment. Available immediately. Rent per month is kr. 410.000 + electricity. Rent increases according to the consumer price index. Deposit, equal to three months rent, kr. 1.230.000: money, bank deposit or deposit from insurance company (leiguskjol.is).
Allar nánari upplýsingar veitir (information:) Eggert Ólafsson í síma (tel.): 893 1819 eða eggertolafsson54@gmail.com
Nánari lýsing: Komið er inn í rúmgott anddyri/hol með fataskáp, sem er opið inn í stofu og eldhús. Í eldhúsi er innrétting sem er bæði hvít og með eikaráferð, ásamt veggföstu eldhúsborði, innbyggðri nýlegri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp/frysti. Björt stofa er með útgengt á rúmgóðar svalir. Svefnherbergisgangur er með fataskáp. Í baðherbergi er hvít innrétting, baðkar með glerskilrúmi og sturtustöng, handklæðaofn, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og flísar kringum baðkar. Hjónaherbergi er með fataskáp og viðarklæðningu við höfðagafl. Tvö herbergi og annað er með fataskáp. Parket er á gólfum, nema á baðherbergi þar sem eru flísar. Sérgeymsla, ásamt sameiginlegu þvottahúsi og vagna- og hjólageymslu, eru í kjallara.
Further description: You enter a spacious entrance hall with a wardrobe, which is open to the living room and kitchen. The kitchen has both white and oak-finished furnishings, along with a wall-mounted kitchen counter, a built-in dishwasher and a built-in fridge/freezer. The bright living room has access to a spacious balcony. The bedroom hallway has a wardrobe. The bathroom has white furnishings, a bathtub with a glass partition and a shower rod, a heated towel rail, a wall-mounted toilet, a washing machine connection and tiles around the bathtub. The master bedroom has a wardrobe and wooden paneling at the headboard. Two bedrooms and one have a wardrobe. The floors are parquet, except in the bathroom, which has tiles. A separate storage room, along with a shared laundry room and a stroller and bicycle storage room, are in the basement.