Fasteignaleitin
Skráð 26. apríl 2026

Bjarkarbraut 19

RaðhúsNorðurland/Dalvík-620
136.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
61.500.000 kr.
Fermetraverð
450.220 kr./m2
Fasteignamat
45.750.000 kr.
Brunabótamat
71.750.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Garður
Pallur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2154706
Landnúmer
151416
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Inntak endurnýjað og hluti lagna.
Raflagnir
Búið er að endurnýja tengla og töflu.
Frárennslislagnir
Endurnýjað 2007.
Gluggar / Gler
Talið í lagi
Þak
Þak var endurnýjað árið 2020, það timbur sem þurfti, einangrun og járn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita. Ofnar hafa verið endurnýjaðir og inntak
Inngangur
Tveir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
* Skemmd er í flísalögn við bakinngang. * Gólflista vantar á nokkrum stöðum en seljandi mun klára það fyrir afhendingu eignar. Eignin er ekki að fullu í samræmi við teikningar * Enginn eignaskiptasamningur er til fyrir húsið.
Kvöð / kvaðir
Hitaþræðir í þakrennum fyrir húsið er tengdir hjá íbúð nr 21 og innheimtir eigandinn fyrir það 1 sinni á ári eftir notkun.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Bjarkarbraut 19 - Vel viðhaldin 5 herbergja raðhúsaíbúð í 3ja íbúða húsi á Dalvík - stærð 136,6 m²

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti 
Inngangshæð:
Forstofa og snyrting.
Efri pallur: Eldhús, stofa og hjónaherbergi. 
Efsti pallur: Svefnherbergi.
Jarðhæð: Bakinngangur, gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymsla og þvottahús.

Forstofa er með harðparketi á gólfi, tvöföldum skáp og endurnýjaðri útidyrahurð. Fyrir framan er rúmgóð timbur verönd um 50 m² að stærð.
Eldhús var endurnýjað árið 2018. Þar er harðparket á gólfi og hvít innrétting með flísum á milli skápa. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa er með harðparketi á gólfi og stórum útsýnisglugga til vesturs.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir. Falleg hvít innrétting, wc, handklæðaofn, baðkar og flísalögð sturta.
Lítil. snyrting er við hliðina á forstofu. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, handlaug og wc.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með harðparketi á gólfi og tvö með fataskápum. 
Þvottahús er með lökkuðu gólfi, hillum, vask og opnanlegum glugga.
Geymsla er með lökkuðu gólfi, hillum og opnanlegum glugga.
Bakinngangur og gangur á jarðhæð eru með flísum á gólfi, góðum fataskápum og endurnýjaðri útidyrahurð. 
Sameiginleg geymsla/lagnarými er undir íbúð 21. Þar er ekki full lofthæð.

Annað
* Árið 2011 var húsið einangrað að utan, steinað og skipt um útidyrahurðir.
* Á árunum 2018-2019 voru vatnsinntök endurnýjuð, frárennsli, raflagnir mikið endurnýjaðar og taflan.
* Harðparket var lagt á íbúðina á árunum 2018 - 2019.
* Þak var endurnýjað árið 2020, skipt um það timbur sem þurfti, ný einangrun og nýtt járn.
* Hitaþræðir eru í þakrennum. 
* Fyrir framan húsið er góð timbur verönd um 50 m²
* Möl er á bílapstæðinu framan við hús og gras er á baklóð og þvottasnúrur.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/05/200811.835.000 kr.13.476.000 kr.136.6 m298.653 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 168 íb213 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:16. júlí kl 17:00-18:00
Laugavegur 168 íb213 Heklureitur
105 Reykjavík
113.9 m2
Fjölbýlishús
312
1009 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb403 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:16. júlí kl 17:00-18:00
Laugavegur 168 íb403 Heklureitur
105 Reykjavík
112.6 m2
Fjölbýlishús
412
1154 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb503 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:16. júlí kl 17:00-18:00
Laugavegur 168 íb503 Heklureitur
105 Reykjavík
112.6 m2
Fjölbýlishús
412
1216 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 26
0S6A2943.jpg
Skoða eignina Mýrargata 26
Mýrargata 26
101 Reykjavík
130.1 m2
Fjölbýlishús
423
Fasteignamat 120.150.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin