ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Krókahraun 8, 220 Hafnarfjörður, birt stærð 125.6 fm.Um er að ræða einstaklega fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð ásamt 32 fm bílskúr á besta stað í Hafnarfirði!
Eignin er vel skipulögð og björt. Samanstendur af forstofu, Hjónaherbergi með "walk in" fataherbergi, barnaherbergi, fallegu baðherbergi, eldhúsi, þvottahúsi og rúmgóðri stofu með útgengi á skjólgóðar suðvestur svalir.
Bílskúrinn er 32 fm með flotuðu gólfi, heitt og kalt vatn, rafmagnshurð auk sérinngangs á hlið sem gerir aðgengi einstaklega þægilegt. Tilvalið fyrir bílinn sem og vinnuaðstöðu, geymslu eða fyrir áhugamálið.
Eign sem hefur ávallt fengið gott viðhald og endurbætur í gegnum tíðina. Ekki láta þessa glæsilegu og vel staðsettu eign framhjá þér fara! Þak hefur verið endurnýjað ásamt þakjárni á bílskúr, lausafög að hluta ásamt hluta glerja , baðkari skipta ú fyrir "walk in" sturtu og lagnir þar í kring, nýleg innrétting á baði, ofnar endurnýjaðir. Gólfefni í eldhúsi og þvottahúsi endurnýjuð, Walkin fataherbergi sett Nánari upplýsingar veitir/veita: Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 7719820, tölvupóstur sigurjon@allt.is. Nánari lýsing eignar:
Forstofa hefur parket á gólfi, og fataskáp.
Hjónaherbergi er rúmgott, hefur parket á gólfi og fataherbergi.
Barnaherbergi hefur parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hefur walk in sturtu, fallega nýlega innréttingu og salerni.
Eldhús hefur nýlegar flísar á gólfi, nýlega inniréttingu með tækjum og borðkrók.
Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi, útgengt á suðursvalir.
Svalir snúa til suðurs
Þvottahús er innaf eldhúsi með glugga, hefur nýlegar flísar á gólfi, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr er 32 fm, gólf er flotað, heitt og kalt vatn, innkeyrslu hurð ásamt inngönguhurð á hlið skúrs. Gluggar eru innst í skúr. Þakjárn endurnýjað.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla á jarðhæð, ásamt skáp sem tilheyrir íbúð.
Umhverfi: Vinsæl staðsetning inní botnalanga miðsvæðis í hafnarfirði, stutt í alla helstu þjónustu m.a. Bónus, Krónan, apótek, íþróttasvæði, 2 grunnskólar og 2 leikskólar. Strætó nr 1 stoppar í 5 mín fjarlægð
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.